Innlent

Ó­vissu­stig í Gríms­vötnum: Von á litlu hlaupi á morgun

Bjarki Sigurðsson skrifar
Íshellan í Grímsvötnum er að lækka.
Íshellan í Grímsvötnum er að lækka. Vísir/RAX

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna mögulegs jökulshlaups úr Grímsvötnum. 

Á vef Veðurstofunnar segir að mælingar gefi til kynna að vatn sé farið að streyma úr Grímsvötnum og að von sé á hlaupi í Gígjukvísl. Íshellan hefur sigið um tæpa þrjá metra á síðustu dögum. 

Líklegast er að hlaupið komi fram í Gígjukvísl á morgun og standi yfir í nokkra daga. Vatnsstaða Grímsvatna er lág og því á Veðurstofan von á litlu hlaupi, allt að fimm sinnum minna en síðasta hlaup sem varð í desember á síðasta ári. 

Mælingar Veðurstofunnar benda til þess að hámarksrennsli hlaupsins verði 500 rúmmetrar á sekúndu. Í fyrra náði það tæplega þrjú þúsund rúmmetrum á sekúndu. Það hlaup hafði lítil sem engin áhrif á mannvirki. 

Auknar líkur á eldgosi

Veðurstofan segir að dæmi sé um að eldgos verði í Grímsvötnum eftir að vatn hleypur þaðan. Skyndilegur þrýstiléttir vegna lækkandi vatnsborðs getur hleypt af stað gosum. Þannig var atburðarásin árin 2004, 1934 og 1922.

Vísindamenn Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands munu ásamt Veðurstofunni halda áfram að vakta Grímsvötn og birta upplýsingar eftir því hver þróun atburðarrásarinnar verður. 

Grímsvötn er virkasta megineldstöð Íslands. Algengt er að fimm til tíu ár líði á milli gosa en síðasta gos í Grímsvötnum varð árið 2011.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×