Viðskipti innlent

Þóra Eggertsdóttir yfirgefur Play

Eiður Þór Árnason skrifar
Þóra hefur ákveðið að skipta um takt.
Þóra hefur ákveðið að skipta um takt. Samsett

Þóra Eggertsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálsviðs Play, hefur sagt starfi sínu lausu hjá flugfélaginu en hún hefur starfað þar frá því í maí 2021. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að Þóra muni áfram sinna stöðunni þar til eftirmaður hennar tekur við en frekari upplýsingar verða veittar um hann síðar.

Áður starfaði Þóra sem forstöðumaður innanlandsflugs hjá Icelandair. Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir að Þóra hafi verið öflug samstarfskona hans á uppbyggingartímabili félagsins.

„Hún hefur byggt upp gríðarlega öflugt og flott teymi með sér og lagt grunn sem við munum byggja á í framtíðinni. Ég þakka Þóru innilega fyrir gott og faglegt samstarf og hennar mikilvæga framlag um leið og ég óska henni velfarnaðar í hverju því sem hún tekur sér fyrir hendur í næsta kafla,” segir Birgir í tilkynningu.

Sjálf segist Þóra hafa ákveðið að breyta til og segja skilið við félagið. Hún sé stolt af því að hafa fengið tækifæri til að vinna sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs á meðan félagið var að byggjast upp.

„Stoltust er ég af fjármálateyminu sem við höfum byggt upp síðustu misseri og mun sannarlega sakna samstarfsfólksins.“

„Ég óska PLAY alls hins besta og hlakka til að fylgjast með úr örlítið meiri fjarlægð.”






Fleiri fréttir

Sjá meira


×