Úr Red Dead í GTA 6 Samúel Karl Ólason skrifar 9. september 2022 14:18 Arthur Morgan og Trevor Philips, úr RDR 2 og GTA 5. Starfsmenn leikjafyrirtækisins Rockstar kvöddu nýverið leikinn Red Dead Redemption. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa ákveðið að hætta að þjónusta fjölspilunarhluta leiksins etir nýjustu uppfærslu hans og munu starfsmenn Rockstar þess í stað einbeita sér að framleiðslu sjötta Grand Theft Auto leiksins.
Rockstar hefur lengi verið gagnrýnt vegna Red Dead Online og þá sérstaklega fyrir fáar og umfangslitlar uppfærslur á leiknum. Svindlarar og gallar hafa leikið spilara grátt. Í yfirliti nýjustu uppfærslurnar eru skilaboð frá starfsmönnum þar sem þeir þakka þeim sem spiluðu leikinn en sambærileg skilaboð fylgdu nýlegri uppfærslu á GTA 5, samkvæmt frétt PCGamesN. Sjá einnig: Líklega besti leikur þessarar kynslóðar Miðillinn segir líklegt að einhvers konar tilkynning um GTA 6 líti dagsins ljós á næstunni. Það var ekki fyrr en í febrúar á þessu ári sem forsvarsmenn Rockstar staðfestu að framleiðsla GTA 6 væri hafin. GTA 5 kom fyrst út árið 2013 en hefur ítrekað verið gefinn út aftur síðan þá. Sá leikur hefur skilað Rockstar gífurlegum tekjum en hann varð fyrir þó nokkrum árum arðbærata skemmtanaafurð sögunnar. Sjá einnig: Enn ein útgáfan og sú besta, aftur Fyrr í sumar bárust þó fregnir af GTA 6 og þar á meðal að talið væri að hann yrði gefinn út á milli apríl 2023 og mars 2024. Þá var sagt frá því að kona yrði í einu af aðalhlutverkum leiksins og að hann gerðist í Vice City, sem er nokkurs konar útgáfa af Miami í Flórída. Áður hefur því verið haldið fram að leikurinn muni ekki verða gefinn út fyrr en árið 2025.
Leikjavísir Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Pattra með pæju-padelmót Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? Áskorun Fleiri fréttir Blood of Dawnwalker: Tíminn er þinn helsti óvinur Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Sjá meira