Fáum tölvuleikjum í sögunni hefur verið beðið eftir með jafnmikilli eftirvæntingu og Grand Theft Auto VI, sjötta leiksins í hinni gríðarvinsælu GTA-seríu. Síðasti leikur seríunnar, Grand Theft Auto V, kom út árið 2013 svo biðin eftir sjötta leiknum er orðin býsna löng.
Þrátt fyrir að það sé liðinn nærri áratugur frá útgáfu fimmta leiksins hefur Rockstar Games lítið sagt um væntanlegan sjötta leikinn. Þangað til núna.
Rómanskt-amerískt glæpakvendi í aðalhlutverki
Í nýlegri umfjöllun Bloomberg komu í fyrsta sinn fram bitastæðar upplýsingar um sjötta leikinn en þar kemur meðal annars fram að hann muni eiga sér stað í skáldaðri útgáfu af Miami í Flórída.
Þá kemur fram að leikurinn sé búinn að vera í framleiðslu frá árinu 2014 og hans sé von einhvern tímann á bilinu frá apríl 2023 til mars 2024. Efasemdaraddir hafa þó kviknað um hvort slíkar áætlanir séu raunsæjar.
Einnig kemur þar fram að spilarar leiksins muni bregða sér í hlutverk pars sem sé lauslega byggt á hinum frægu glæpahjónum og bankaræningjum Bonnie og Clyde. Þá verði glæpakonan af rómansk-amerískum uppruna, svokölluð „latina“ á ensku.

Þessar fréttir koma nokkuð á óvart af því að í tölvuleikjaserían hefur í gegnum tíðina verið þekkt fyrir að vera bæði mjög karllæg og kvenfyrirlitin.
Konur hafa hingað til fengið lítil hlutverk í seríunni og þá yfirleitt sem ástarviðföng karla, fórnarlömb, stripparar eða vændiskonur. Fyrir vikið hefur serían hlotið mikla gagnrýni, bæði fyrir birtingarmyndir á borð við þessar, yfirgengilegt ofbeldi og fordómafullt innihald.
Stórfelld stefnubreyting inn á við og út á við
Í ljósi þess er áhugavert að Rockstar Games hefur greint frá því að auk fyrrnefndrar kvenpersónu ætli framleiðandinn að draga úr rasískum, hómófóbískum og kvenfyrirlitnum bröndurum í sjötta leiknum.
Báðar ákvarðanirnar eru hluti af yfirstandandi menningarbreytingu innan Rockstar Games sem vilja innleiða hlýlegri vinnustaðamenningu innan fyrirtækisins og bæta ásýnd þess út á við.

Eftir útgáfu fyrirtækisins á tölvuleiknum Red Dead Redemption 2 árið 2018 bárust fréttir af gríðarlega miklum yfirvinnustundum þar sem starfsmenn sem unnu að leiknum voru neyddir til að vinna allt að hundrað klukkustunda vinnuvikur til að ljúka við hann. Fyrirtækið hlaut mikla gagnrýni fyrir þetta innan sem utan fyrirtækisins.
Síðan þá hefur fyrirtækið ákveðið að bæta úr vinnuskilyrðum innan fyrirtækisins, fækka yfirvinnustundum og bjóða upp á sveigjanlegri vinnutíma.
Jafnframt hefur fyrirtækið ákveðið að vera menningarlega næmara, sérstaklega gagnvart jaðarhópum. Auk fyrrnefndra ákvarðana, kvenaðalhlutverksins og fækkunar á fordómafullum bröndurum, ákvað fyrirtækið að taka út transfóbískt innihald úr GTA V í nýlegri uppfærslu á leiknum.
Viðbrögð fólks misjöfn
Eins og mátti búast við hafa viðbrögð fólks við þessum fréttum verið misjöfn. Sumir hafa hrósað fyrirtækinu fyrir að vera loksins í takt við tímann á meðan aðrir segja þetta vera hluta af svokallaðri woke-væðingu.
GTA 6 is going to go woke.
— Lavern Spicer (@lavern_spicer) July 27, 2022
They ll also go broke.
Tölvuleikjaspilarar eru sérstaklega viðkvæmir fyrir breytingum sem þessum og hafa í gegnum tíðina gjarnan brugðist ókvæða við því að tölvuleikjaframleiðendur reyni að auka við margbreytileika í tölvuleikjum sínum.
Þetta var sérstaklega áberandi árin 2014 og 2015 þegar stór hópur tölvuleikjaspilara stofnaði hreyfinguna Gamergate sem sneri að því að mótmæla femínisma í tölvuleikjaiðnaðinum.