Viðskipti innlent

Boðar fleiri tugi þúsunda í sparnað með debetkortum

Snorri Másson skrifar

Fleiri þúsund manns eru á biðlista, en tvö hundruð manns hafa þegar tekið í notkun greiðslukort frá nýja samfélagsbankanum - eða sparisjóðnum - Indó. Greiðslukortunum fylgja ekki færslugjöld og framkvæmdastjóri sparisjóðsins segir viðskiptavini hæstánægða.

„Venjulegur einstaklingur myndi spara svona í kringum 30.000 á ári í færslugjöld og árgjöld. Og þessir hærri vextir sem við erum að borga ef fólk er hjá okkur er það tekjuaukning um 40.000 á ári,“ segir Haukur Skúlason, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Indó. 

Við þetta bætist að Indó tekur út gengisálagningu þegar verslað er hjá erlendum netverslunum, þannig að allt í allt segir Haukur að einstaklingur geti fengið til baka allt að 72.000 krónur á ári.

Hér að ofan má sjá viðtal við Hauk sem sýnt var í Íslandi í dag í gær. Þar var einnig fjallað um ýmislegt annað ofarlega á baugi í íslensku samfélagi, en viðtalið við Hauk hefst á mínútu fjögur. 

„Ég er vongóður um að þetta verði banki eða sparisjóður sem fólk vill eiga viðskipti við. Ef það þýðir að við verðum stærst þá er það fínt, en við viljum fyrst og fremst bara gera okkar viðskiptavini ánægða,“ segir Haukur Skúlason, meðstofnandi og framkvæmdastjóra samfélagsbankans Indó.Vísir/Vilhelm

Fyrsti sparisjóðurinn í hálfa öld

Hugmyndin að bankanum kviknaði hjá Hauki og Tryggva Birni Davíðssyni viðskiptafélaga hans fyrir fjórum árum. Nú hafa þeir sótt talsverða fjárfestingu og starfsfólkið telur á annan tug.

„Þetta er töluvert meira mál en við héldum í upphafi. En þetta hefur verið skemmtilegt, því þetta hefur ekkert verið gert áður, eða það eru 50 ár síðan þetta var gert síðan. Það sem við höfum líka lært er hvað það er til mikið af færu fólki sem hefur gengið til liðs við okkur. Og hvað þörfin og áhuginn fyrir þessu er mikill úti í samfélaginu,“ segir Haukur.

Samfélagsbankinn Indó er strangt til tekið ekki orðinn banki, en hann er orðinn sparisjóður – nánar tiltekið fyrsti sparisjóðurinn sem er stofnaður á Íslandi frá 1972. Síðan ætlar bankinn að fikra sig áfram í átt að því að veita lán. Að lokum á þetta að vera það sem hefur verið kallað „áskorendabanki” þ.e. banki sem skorar á hina bankana og er með minni yfirbyggingu; eins og Haukur segir engar risahöfuðstöðvar, heldur skrifstofurými fyrir ofan bræðurna Ormsson sem dugar vel. 

Indó á einnig að vera samfélagsbanki, þar sem framlög til samfélagsmála eru meira hlutfall af hagnaði en hjá öðrum bönkum. Seðlabanki Íslands veitti indó leyfi til að starfa sem sparisjóður í febrúar en sparisjóðurinn tryggði sér tæplega 600 milljóna króna fjármögnun síðastliðið haust. Á meðal stærri fjárfesta er Haraldur Ingi Þorleifsson, stofnandi UENO, sem síðar var selt til Twitter.


Tengdar fréttir

Stofn­endur indó vilja bæta banka­kjör heimila um tíu milljarða

Haukur Skúlason og Tryggvi Björn Davíðsson, stofnendur indó, fengu að heyra fjölmargar ástæður fyrir því hvers vegna ómögulegt væri að stofna nýjan banka. Fjórum árum síðar er sparisjóðurinn kominn með starfsleyfi, aðgang að greiðslukerfi bankanna og stefnir að því að bjóða alla velkomna í viðskipti á seinni hluta þessa árs. Þeir hafa einsett sér að umbylta verðlagningu á bankamarkaðinum og telja að aukin samkeppni geti skilað heimilum landsins allt að 10 milljarða króna ábata.

„Ég var einmana í gegnum allt þetta ferli“

Haraldur Þorleifsson, stofnandi hönnunarstofunnar Ueno, samþykkti kauptilboðið frá Twitter, lægsta tilboðið sem honum barst, vegna þess að hann sá fram á að geta haft jákvæð áhrif á umræðuna sem verður sífellt skautaðri. Í viðtali við Innherja segir hann að stærsta vandamál nútímans sé það hvernig molnað hefur undan samfélagssáttmálanum á undanförnum árum og að ekki sé gengið nógu langt í því að beita skattkerfinu til að útrýma fátækt.

Haraldur í Ueno og Eldhrímnir á meðal stærstu hluthafa indó

Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno, og fjárfestingafélagið Eldhrímnir eru á meðal stærstu hluthafa áskorendabankans og sparisjóðsins indó sem hefur nýlega fengið starfsleyfi hjá Seðlabanka Íslands. Þetta kemur fram á hluthafalista indó sem Innherji hefur undir höndum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×