Innherji

„Ætlum okkur að hafa virka aðkomu að rekstrinum,“ segir nýr stærsti eigandi Sýnar

Hörður Ægisson skrifar
Fjárfestahópur Gavia Invest: Reynir Grétarsson, stofnandi Creditinfo, Jón Skaftason, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjárfestinga 365 miðla, og Jonathan Rubini, eigandi fasteignafélagsins JL Properties í Alaska.
Fjárfestahópur Gavia Invest: Reynir Grétarsson, stofnandi Creditinfo, Jón Skaftason, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjárfestinga 365 miðla, og Jonathan Rubini, eigandi fasteignafélagsins JL Properties í Alaska.

Forsvarsmaður nýstofnaðs fjárfestingafélags sem hefur fest kaup á um 15 prósenta hlut í Sýn, sem gerir það að stærsta hluthafanum, segir að fjárfestahópurinn hafi „fylgst lengi“ með fyrirtækinu.

„Við ætlum okkur að hafa virka aðkomu að rekstri félagsins og munum beita okkur fyrir aukinni verðmætasköpun í þágu allra hluthafa Sýnar,“ útskýrir Jón Skaftason, sem var um árabil framkvæmdastjóri fjárfestinga hjá 365 miðlum, í samtali við Innherja en hann er á meðal hluthafa í fjárfestingafélaginu Gavia Invest sem stóð að kaupum á öllum hlut Heiðars Guðjónssonar, fráfarandi forstjóra Sýnar.

Jón, sem lét af störfum sem framkvæmdastjóri fjárfestingafélagsins Strengs fyrr á árinu, segir Sýn vera öflugt félag sem starfar á spennandi mörkuðum. „Undirliggjandi eignir félagsins eru sterkar, hvort sem litið er til innviða, fjarskiptareksturs, fjölmiðla eða annarra eigna,“ en Sýn rekur meðal annars fjarskiptafélagið Vodafone og fjölmiðlana Vísi, Stöð 2, Bylgjuna og tengda miðla.

Í kjölfar kaupanna í Sýn mun Gavia Invest, samkvæmt heimildum Innherja, óska eftir að boðað verði til hluthafafundar á næstu vikum þar sem kjörin verður ný stjórn í félaginu.

Við ætlum okkur að hafa virka aðkomu að rekstri félagsins og munum beita okkur fyrir aukinni verðmætasköpun í þágu allra hluthafa Sýnar.

Auk Jóns, sem fer með hlut í Gavia Invest í gegnum félagið sitt Pordoi, þá samanstendur fjárfestahópurinn af Reyni Grétarssyni, stofnanda Creditinfo, og Hákoni Stefánssyni, og auk þess félaginu E&S 101 sem er í eigu Jonathan Rubini, einn ríkasti maður Alaska og meðal stærstu eigenda Keahótela, Mark Kroloff hjá First Alaskan Capital Partners og Andra Gunnarssonar, lögmanns og fjárfestis. E&S 101 er nú þegar í hópi stærstu hluthafa fasteignafélagsins Kaldalóns.

Rubini var einnig á meðal eigenda fjarskiptafélagsins Nova og viðskiptafélagi hans Mark Kroloff, sem kemur núna að fjárfestingunni í Sýn, sat um tíma í stjórn Nova.

Reynir Grétarsson, sem er í dag meðal annars stjórnarformaður Saltpay, seldi meirihluta sinn í Creditinfo Group í mars í fyrra til bandaríska sjóðsins Levine Leichtman Capital Partners. Samstæðan var verðmetin á bilinu 20 til 30 milljarða króna í viðskiptunum. Í kjölfarið hefur fjárfestingafélag Reynis, InfoCapital, komið að stórum kaupum í ýmsum skráðum félögum og er í dag á meðal stærstu hluthafa Icelandair Group og Kviku banka.

Fjárfestingafélagið Ursus, sem er í eigu Heiðars, gekk frá sölu á 12,7 prósenta hlut sínum í Sýn til Gavia Invest um helgina á genginu 64 krónur á hlut. Það er rúmlega níu prósentum hærra gengi en hlutabréfaverð Sýnar stóð í við lokun markaða síðastliðinn föstudag. Gavia Invest keypti til viðbótar af öðrum hluthöfum Sýnar um 2,2 prósenta hlut – samanlagt keypti félagið því 40 milljónir hluta að nafnvirði – á sama gengi en um þessar mundir stendur hlutabréfaverð Sýnar í 62,5 krónum á hlut. Markaðsvirði félagsins er nú um 16,8 milljarðar króna.

Það var Arion banki sem hafði umsjón með viðskiptunum og kom meðal annars að fjármögnun á kaupum fjárfestahópsins á hlutnum í Sýn, samkvæmt upplýsingum Innherja.

Heiðar, sem tók við starfi forstjóra Sýnar árið 2019 eftir að hafa áður verið stjórnarformaður félagsins, var fyrir söluna stærsti hluthafi félagsins.

Heiðar bætti síðast við sig í Sýn í byrjun júnímánaðar á árinu þegar hann keypti 2 milljónir hluta að nafnverði á genginu 57,5 krónur á hlut.

Bréf Sýnar hækkuðu verulega í verði síðastliðinn vetur, úr 40 krónum í lok september upp í 67 krónur um miðjan febrúar, en síðan þá hafa stríðsátökin í Úkraínu og efnahagslegar afleiðingar þeirra litað verðþróun fjarskiptafélagsins og annarra skráðra félaga.

Fyrir opnun markaða í dag hafði hlutabréfaverð Sýnar lækkað um tæplega 11 prósent frá áramótum.

Á fyrsta ársfjórðungi námu tekju Sýnar 5.682 milljónum króna og jukust þær um 682 milljónir á milli ára. Hagnaður fjórðungsins nam 207 milljónum króna samanborið við tap upp á 231 milljón á sama fjórðungi í fyrra.

Í uppgjörstilkynningunni sagði Heiðar ánægjulegt að sjá 14 prósenta innri tekjuvöxt milli ára og að horfurnar væru góðar.

„Ofan á það bætist fyrirsjáanlegur vöxtur í starfseminni vegna bættrar þjónustu, nýs vöruframboðs og uppbyggingar 5G og tengdrar tækni,“ sagði Heiðar.

„Ýmsir þættir rekstrar sem fóru úr skorðum vegna COVID koma nú jákvæðir inn í rekstur þegar líða tekur á árið. Við sjáum strax aukningu tekna hjá Endor, aukningu í reiki, auk þess sem auglýsingasala er á góðri uppleið.“

Innherji er undir hatti Sýnar hf.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×