Samstarf

Ung­linga­land­smót UMFÍ snýst um gleði og sam­veru

UMFÍ

Unglingalandsmót UMFÍ fer fram á Selfossi 29. til 31. júlí. Skráning er í fullum gangi og stendur til mánudagsins 25. júlí. Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri móta UMFÍ, segir mótið langþráðan viðburð eftir tveggja ára hlé. Þar geti allir fundið eitthvað við sitt hæfi.

„Það sem einkennir Unglingalandsmót UMFÍ er gleðin og við viljum halda í hana. Það þekkja allir okkar hugmyndafræði um vímulausa fjölskylduskemmtun, íþróttir og leikir á daginn og tónlist á kvöldin. Þarna verða 24 keppnisgreinar en við tökum önnur gildi framyfir harða keppni, Unglingalandsmót UMFÍ snýst um að allir geti tekið þátt á eigin forsendum í gleði og samveru með fjölskyldunni,“ útskýrir Ómar.

Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri móta UMFÍ, segir mótið langþráðan viðburð

Börn og ungmenni á aldrinum 11 til 18 ára geta skráð sig til leiks á unglingalandsmót UMFÍ og geta keppt í eins mörgum greinum og þau vilja. Ekki er skilyrði að vera skráður félagi í ungmenna- eða íþróttafélagi.

„Það er ekkert mál að skrá sig þó þú sért ekki í ákveðnu liði, við sjáum um að raða saman í lið eins og þarf. Oft myndast mikil vinátta milli krakkanna svo þau eru jafnvel búin að setja saman lið sjálf fyrir næsta ár,“ segir Ómar. „Keppendur greiða eitt mótsgjald og fjölskyldur þeirra fá frítt tjaldstæði. Systkini, bæði yngri og eldri eru velkomin og mikil dagskrá verður í gangi, meðal annars tónleikar á hverju kvöldi með mörgum okkar þekktasta tónlistarfólki,“ útskýrir Ómar og leggur áherslu á samveru fjölskyldunnar.

Á meðal tónlistarfólksins sem fram kemur eru Bríet, DJ Dóra Júlía, bræðurnir Frikki Dór og Jón Jónsson, Hr. Hnetusmjör, Stuðlabandið, Birnir og margir fleiri.

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson er meðal þeirra sem koma fram

„Forvarnargildi Unglingalandsmótsins er afskaplega mikilvægt. Við sjáum það og heyrum á foreldrum og krökkunum líka hvað þetta skiptir miklu máli. Við fáum þakkir og tölvupósta sem ylja okkur sannarlega og segir okkur að við erum að gera góða hluti,“ segir Ómar en stór hópur fólks kemur að framkvæmd mótsins.

„Þetta er um 400 manns, sjálfboðaliðar sem vinna í þessu. Um hundrað manns þarf til þess að sinna frjálsíþróttakeppninni eingöngu og svo eru 23 greinar eftir fyrir utan það. Svo þarf að huga að öryggisgæslu og björgunarsveitirnar hafa staðið með okkur vaktina allan sólarhringinn, margir aðila koma að veitingasölu og svo mætti lengi telja. Venjulega byrjum við undirbúning í september árið áður en nú má segja að undirbúningurinn hafi hafist 2019,“ segir Ómar en í tvígang hefur þurft að fresta unglingalandsmótinu vegna Covid. „Við vorum með allt klárt þegar við þurftum að taka þá ákvörðun í annað sinn í fyrra um að fresta mótinu, hún var erfið en skynsamleg. Það er því mikil gleði með að Unglingalandsmót UMFÍ fari loksins fram,“ segir Ómar.

Allar upplýsingar um dagskrá, greinar í boði, afþreyinguna og tónleikana á kvöldin má finna á: www.ulm.is





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×