Ofbýður ráðleggingar á netinu og eitrar innanhúss fyrir lúsmý Ása Ninna Pétursdóttir skrifar 14. júlí 2022 06:00 Meindýraeyðirinn Jóhann Ragnarsson vakti athygli fyrir færslu sína í Facebook hópnum Lúsmý á Íslandi en Jóhann segir þar frá góðum árangri sínum, í baráttunni gegn lúsmý, með því að eitra innanhúss. „Þegar þú ert að eiga við svona kvikindi þá er lágmarkið að þekkja vel til,“ segir Jóhann Ragnarsson meindýraeyðir í samtali við Vísi.
Segist ofbjóða skottulækningaráðin á netinu Færslur Jóhanns í Facebook hópnum Lúsmý á Íslandi hafa vakið töluverða athygli en þar lýsir Jóhann góðum árangri sínum í baráttunni gegn lúsmý með því hreinlega að eitra fyrir þeim innandyra. Ástæðuna fyrir því að hann ákvað að birta færslur í þessum hópi segir hann vera að honum ofbjóði hreinlega að sjá þessar „skottulækninga ráðleggingar“ sem eru úti um allt á netinu. Í fyrri færslu sinni sagði Jóhann frá persónulegri reynslu sinni þegar hann eitraði sumarbústað og í þeirri síðari auglýsti hann svo eftir fjölskyldu sem vildi láta eitra fyrir sig og hann myndi gera það að kostnaðarlausu. Færri komust að en vildu en Jóhann segist þó reyna að verða við kallinu ef hann mögulega getur. Fyrri færslan á Facebook: Gerði smá prufu um helgina. Var á Laugarvatni, um helgina, en þar hefur verið hellingur af lúsmýi að hrekkja bæði þá sem eru í bústöðum og í hjólhýsum/tjaldvögnum. Ég eitraði bústaðinn og furðulegt nokk, þá var enginn bitinn og það sem meira var, er það að við sváfum með opinn glugga. Í bústað þarna rétt við hliðina voru vandræði. Ég gerði prufu að eitra 6 hjólhýsi og tjaldvagn fyrir tveimur árum og það var sama sagan, aðeins eitt bit í þessum vögnum. Skiptar skoðanir á eitrun innandyra Jóhann segist upplifa að fólki finnist það einhvers konar tabú að ræða við meindýraeyði þegar kemur að lúsmýi og það sæki frekar í ýmiskonar húsráð en að leita til fagaðila. Sjálfur fékk hann mikil viðbrögð við færslunni og segist hann líklega muna hafa í nægu að snúast í sumarfríinu að hlaupa til og eitra heimili fólks og bústaði. Ekki eru þó allir meindýraeyðar sammála um það hvort að eitrun innandyra sé ákjósanlegur kostur og segir meindýraeyðirinn Guðmundur Óli Scheving í samtali við Vísi að sjálfur myndi hann aldrei eitra innandyra í þessum tilgangi. Ég hugsa að það sé ekki líklegt til árangurs og myndi aldrei gera það sjálfur. Ég myndi alltaf frekar ráðleggja fólki að nota bara glugganetin og hátíðnitækin. Það hefur reynst vel og virkar! Guðmundur segir eitrið geta verið hættulegt innandyra og það dugi skammt til að halda flugunni frá. Þegar blaðamaður segir Jóhanni frá svari Guðmundar og spyr afhverju stafi þessar ólíku skoðanir meindýraeyða slær Jóhann á létta strengi. „Ég myndi bara segja við þann meindýraeyði: Fáðu þér þá bara aðra vinnu kallinn minn!“ segir hann og hlær. En heldur svo áfram.. „Þetta er bara ekki rétt, þetta virkar mjög vel þegar þetta er gert rétt og vandað til verka. Það þarf að vera fagmaður sem sér um eitrunina og rétt efni sem er notað.“ Allir verði að taka ábyrgð Aðspurður hvaða efni hann hefur verið að nota við eitrunina segir hann eitrið heita Deltasect og vera leyfisskylt og einungis ætlað fagmönnum. „Þetta er mikið notað eitur þegar eitra á fyrir kakkalökkum, veggjalúsum, flugum og öðru en þetta efni hefur reynst mjög vel því það endist í allt að tólf vikur og skilur til dæmis ekki eftir sig neina bletti. Getur eitrið ekki reynst hættulegt? „Ég ætla ekki að fullyrði neitt um það og auðvitað er þetta kannski ekki fyrir alla en þetta efni á að vera hættulítið og hefur lítil sem engin áhrif á fullorðið fólk. Þegar fagmaður sér svo um eitrunina þá að sjálfsögðu forðast það að eitra á þá staði sem börn gætu náð til. Svo er þetta auðvitað á ábyrgð hvers og eins að fara varlega en þetta hefur reynst mörgum mjög vel.“ Á hvaða staði eitrar þú ef þú ert að eitra fyrir lúsmýi? „Ég tek öll fög, allar hurðir og öll hugsanleg op. Svo er líka mikilvægt að eitra á þá staði sem flugurnar geta safnast saman fyrir utan húsið, eins og á ljósum.“ Aldrei opna út þegar það er ljós inni Jóhann segir það að sjálfsögðu hjálpa mikið til að vera með góð og þétt net fyrir öllum gluggum og svo þurfi fólk að læra að umgangast lúsmýið. „Ég get ekki lagt nógu mikla áherslu á það hversu mikilvægt það er að muna það að opna aldrei út ef það er ljós innan dyra, það er ef fólk er statt á lúsmýsvæði. Lúsmýið leitar þá strax inn og í miklu meira mæli ef það er ljós inni.“ Tekur gagnrýninni fagnandi Jóhann er menntaður meindýraeyðir þó að hann starfi ekki við það í dag nema í hjáverkum, eins og hann orðar það. Hann hafi þó leyfið og sé vel að sér þegar kemur að lúsmýi. Ég hef mest verið að gera þetta fyrir ættingja, vini og kunningja og meira svona af því að ég tek alveg út fyrir það að sjá allar þessar myndir af fólki sem er útbitið og greinilega sárþjáð. Þetta á ekki að þurfa að vera svona! Ekki voru allir jafn hrifnir af færslu Jóhanns á Facebook en sjálfur segist hann ekki taka neikvæðar athugasemdir eða gagnrýni nærri sér. Það sé hans trú að fólk þurfi að vera ósammála. „Maður lærir ekkert ef maður hefur bara Já-fólk í kringum sig, það hafa allir gott af gagnrýni til að hugsa meira og velta hlutunum betur fyrir sér. Við þurfum ekkert alltaf að vera sammála og við verðum bara að virða skoðanir hvers annars,“ segir Jóhann að lokum.
Lúsmý Skordýr Tengdar fréttir Ekki sniðugt að klappa lúsmýi frekar en geitungum „Ég var að lenda í fyrsta skipti í þessari pest, þessu lúsmý. Ég hef séð fullt af myndum en hef alltaf sloppið við þetta, en ég slapp ekki núna,“ segir útvarpsmaðurinn Rikki G í Brennslunni í gær. 7. júlí 2021 07:00 Plöntur sem fæla frá lúsmý Það eru til ákveðnar plöntur sem hreinlega fæla frá lúsmý og ýmis skordýr. Vala Matt kynnti sér málið í síðustu viku í Íslandi í dag á Stöð 2 en umræddar plöntur eru einnig fallegar. 20. júní 2022 16:31 Vestfirðingar treysta á ekkert lúsmý í sumar Það er meira en brjálað að gera hjá starfsfólki Vestfjarðarstofu að skipuleggja sumarið fyrir ferðamenn og aðstoða þá á ýmsan hátt, enda búist við metári í fjölda ferðamanna á svæðinu í sumar. Stofan vinnur líka að fjölbreyttum verkefnum í tengslum við byggðaþróun sem og atvinnuþróun á Vestfjörðum. 19. júní 2022 08:05 Mest lesið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Lífið Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Lífið Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Lífið „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Andri og Erla selja í Seljunum „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Hafa ekki sést saman í sjö vikur Elísabet og Áki nefndu stúlkuna Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Segir sjálfsvígin sárust Elín Hall í rándýrum kjól á rauða dreglinum Bein útsending frá svartþrastahreiðri í Hvalfjarðarsveit Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Horfir vonandi niður af himnum og sér börnin blómstra á bóndabænum Smekklegt einbýli í Fossvogi á 230 milljónir Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“ Þórdís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku Föruneyti Pingsins: Enn barist í Baldurs Gate Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Óvænt að „gáfumannarapparar“ herji stríð af þessu tagi Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Endurtekið hvött til að hvíla bláa litinn Gleðitár hjá hundrað konum á Geysi Af vængjum fram: Búlgörsku mafíunni að mæta yrði Ásdísi dömpað Sjá meira
Ekki sniðugt að klappa lúsmýi frekar en geitungum „Ég var að lenda í fyrsta skipti í þessari pest, þessu lúsmý. Ég hef séð fullt af myndum en hef alltaf sloppið við þetta, en ég slapp ekki núna,“ segir útvarpsmaðurinn Rikki G í Brennslunni í gær. 7. júlí 2021 07:00
Plöntur sem fæla frá lúsmý Það eru til ákveðnar plöntur sem hreinlega fæla frá lúsmý og ýmis skordýr. Vala Matt kynnti sér málið í síðustu viku í Íslandi í dag á Stöð 2 en umræddar plöntur eru einnig fallegar. 20. júní 2022 16:31
Vestfirðingar treysta á ekkert lúsmý í sumar Það er meira en brjálað að gera hjá starfsfólki Vestfjarðarstofu að skipuleggja sumarið fyrir ferðamenn og aðstoða þá á ýmsan hátt, enda búist við metári í fjölda ferðamanna á svæðinu í sumar. Stofan vinnur líka að fjölbreyttum verkefnum í tengslum við byggðaþróun sem og atvinnuþróun á Vestfjörðum. 19. júní 2022 08:05