Erlent

Risa­furur í Yo­semite í hættu vegna elda

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Slökkvilið að störfum í Mariposa trjálundinum.
Slökkvilið að störfum í Mariposa trjálundinum. Noah Berger/Associated Press

Mariposa trjálundurinn í Yosemite þjóðgarðinum í Kaliforníu er í hættu vegna skógarelda en trjálundurinn er heimili fimm hundruð risafura.

Trjálundinum var lokað nú á fimmtudag vegna eldana og hafa 1.600 manns yfirgefið svæðið í kring. Trén hafa verið í aukinni hættu á seinustu árum vegna aukningar í fjölda elda í kjölfar hnattrænnar hlýnunar.

Samkvæmt umfjöllun Washington post höfðu engar alvarlegar skemmdir orðið á risafurunum á laugardagsmorgun en fururnar geta orðið allt að 3.000 ára gamlar. Eldurinn hafði þá dreift sér um tæplega þrjá ferkílómetra. 

Ekki er vitað hvernig eldarnir hófust en talið er að veðurfar á svæðinu muni gera störf slökkviliðsins erfiðari.

Myndband frá eldunum má sjá hér að ofan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×