Viðskipti erlent

Stærsta raf­rettu­fram­leiðandanum skipað að taka vörur af markaði

Kjartan Kjartansson skrifar
Rafretta frá Juul. Fyrirtækið er það umsvifamesta á bandarískum markaði.
Rafretta frá Juul. Fyrirtækið er það umsvifamesta á bandarískum markaði. AP/Brynn Anderson

Rafrettuframleiðandanum Juul var skipað að fjarlægja vörur sínar af markaði í Bandaríkjunum í gær. Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) telur fyrirtækið ekki hafa sýnt fram á að vörur þess gagnist lýðheilsu.

Fyrirtækið þarf að hætta að selja rafrettur sínar og tóbakshylki fyrir þær. Vörur sem eru þegar á markaði verði fjarlægðar. Neytendur mega þó halda áfram að nota vörur sem þeir hafa þegar keypt, að sögn FDA.

Rafrettur þurfa að uppfylla viss skilyrði til að fá markaðsleyfi, þar á meðal að þær gagnist lýðheilsumarkmiðum. AP-fréttastofan segir að þetta þýði í reynd að sýna þurfi fram á að fullorðnir reykingamenn séu líklegir til að hætta að reykja að draga úr reykingum og að unglingar séu ólíklegir til að ánetjast þeim.

Juul hefur verið sakað um að stuðla að gríðarlegri útbreiðslu rafrettureykinga unglinga í Bandaríkjunum og víðar um heim. 

FDA segir að fyrirtækið hafi leikið sérstaklega stórt hlutverk í þeim faraldri. Það hafi ekki lagt fram nægar sannanir fyrir því að vörur þess hjálpi til við að vernda lýðheilsu. Án áreiðanlegra gagna um áhrif rafrettnanna á heilsu fólks hafi stofnunin ákveðið að skipa fyrir um að vörurnar væru teknar af markaði.

Fulltrúar Juul segja að fyrirtækið ætli að freista þess að fá banninu frestað á meðan það ræður ráðum sínum.


Tengdar fréttir

Raf­rettu­fram­leiðandi borgar sig frá mál­sókn

Bandaríski rafrettuframleiðandinn Juul hefur fallist á að greiða 40 milljónir dollara í dómsátt vegna málsóknar yfirvalda í Norður-Karólínu sem saka fyrirtækið um að stuðla að nikótínfíkn ungmenna. Fleiri slík mál eru í farvatninu.

Juul hunsaði vísbendingar um að unglingar ánetjuðust rafrettum

Rafrettuframleiðandinn íhugaði í upphafi að hafa sjálfvirka viðvörun eða stoppara í rafrettur þegar notendur væru búnir að neyta ákveðins magns nikótíns en aldrei varð neitt af því. Juul virðist hafa hunsað viðvaranir um að unglingar gætu ánetjast rafrettum þess.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×