Viðskipti innlent

„Ég bara hika ekkert við að heimta meiri kvóta“

Kristján Már Unnarsson skrifar
Arthur Bogason er formaður Landssambands smábátaeigenda.
Arthur Bogason er formaður Landssambands smábátaeigenda. Einar Árnason

Strandveiðiflotinn mokveiðir nú sem aldrei fyrr og stefnir í að heildarpotturinn klárist fyrir lok næsta mánaðar. Formaður smábátaeigenda krefst þess að fá meiri kvóta til að koma í veg fyrir að veiðarnar stöðvist.

Fram kom í fréttum Stöðvar 2 að strandveiðarnar hafi verið að gefa óvenju vel af sér þetta sumarið. Miðað við leyfðan dagskammt og það fiskverð sem er þessa dagana þá er hver róður að gefa að jafnaði í brúttótekjur um eða yfir þrjúhundruð þúsund krónur eftir daginn.

Strandveiðisjómenn landa í Árneshreppi á Ströndum. Höfnin í Norðurfirði er núna í ellefta sæti yfir aflahæstu strandveiðihafnir landsins, með 227 tonn, en var í fimmta sæti yfir landið í fyrra.Egill Aðalsteinsson

Meðalafli úr róðri er núna um 50 prósentum meiri en á sama tíma í fyrra og þorskverð um fjórðungi hærra, samkvæmt tölum frá Landssambandi smábátaeigenda.

„Þetta eru algjör met. Við höfum verið að slá aflamet per dag aftur og aftur og alveg ljóst að það er fullt af fiski á miðunum. Við þurfum bara að fá það viðurkennt,“ segir Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, og segir sorglegt að þetta virðist fara framhjá vísindamönnum.

„Því að upplifun manna á miðunum, hún er ekki í neinu samræmi við það sem Hafró er að segja; annarsvegar að stofninn sé í rosalega góðu lagi, og hins vegar að það þurfi að skera niður veiðiheimildir.“

Svo mikið er víst, strandveiðiflotinn er á sex vikum búinn með um sextíu prósent kvótans.

„Hann gæti bara klárast fyrir byrjun ágúst, miðað við þetta áframhald,“ segir Arthur.

Tíu aflahæstu hafnir landsins, það sem af er strandveiðunum, samkvæmt tölum Fiskistofu í dag. Allar eru á vestan- og norðvestanverðu landinu, nema Hornafjörður.Grafík/Kristján Jónsson

Listi Fiskistofu yfir aflahæstu hafnir, með Patreksfjörð, Bolungarvík og Ólafsvík á toppnum, sýnir að mest hefur veiðst vestanlands, en Arthur segir alvarlegast ef önnur strandveiðisvæði verða útundan.

„Sérstaklega náttúrlega svæðið fyrir norðan og norðaustan. Þar er bara rétt að byrja að fiskast núna.“

Strandveiðisjómaður á bryggjunni á Bakkafirði. Í fyrra endaði Bakkafjörður í níunda sæti yfir aflahæstu hafnir strandveiðanna. Núna er Bakkafjörður í sautjánda sæti.Arnar Halldórsson

Hann segir bara eitt til ráða:

„Ég bara hika ekkert við að heimta meiri kvóta, eða meiri aflaheimildir. Því að smábátaútgerðin hefur aldrei átt, og hún átti aldrei neina sök í því að hér þurfti að fara að takmarka veiðar. Þetta voru stóru skipin, stórútgerðin, sem á allan heiðurinn af því.

Og fyrir vikið þá á að koma öðruvísi fram við smábátaútgerðina, hvort sem það heitir strandveiðar eða aðrar veiðar. Og þær eiga að njóta forgangs vegna forsögu mála,“ segir formaður Landssambands smábátaeigenda.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:

Hér er listi Fiskistofu í heild yfir löndunarhafnir á strandveiðunum:

Löndunarhöfn

Afli úr sjó kg

Patreksfjörður

687.852

Bolungarvík

542.020

Ólafsvík

532.304

Arnarstapi

404.773

Hornafjörður

398.759

Rif

336.586

Sandgerði

311.831

Skagaströnd

296.326

Suðureyri

254.887

Tálknafjörður

249.602

Norðurfjörður

227.026

Grundarfjörður

220.604

Siglufjörður

217.167

Stykkishólmur

152.555

Húsavík

130.637

Akranes

108.872

Bakkafjörður

101.073

Þorlákshöfn

100.469

Bíldudalur

94.727

Djúpivogur

90.689

Þingeyri

79.258

Vestmannaeyjar

78.360

Grindavík

70.369

Borgarfjörður eystri

68.741

Flateyri

68.399

Neskaupstaður

68.301

Grímsey

64.873

Dalvík

61.044

Sauðárkrókur

60.920

Hólmavík

53.642

Drangsnes

47.762

Þórshöfn

43.834

Raufarhöfn

35.245

Hofsós

28.535

Stöðvarfjörður

27.338

Brjánslækur

24.780

Akureyri

22.201

Hafnarfjörður

20.363

Vopnafjörður

18.534

Kópasker

15.321

Breiðdalsvík

10.342

Reykjavík

4.707

Ólafsfjörður

4.132

Seyðisfjörður

3.993

Hrísey

3.816

Eskifjörður

595

Mjóifjörður

251

Samtals

6.444.415


Tengdar fréttir

Leggja til sex prósenta lækkun afla­marks þorsks

Hafrannsóknastofnun hefur lagt til sex prósenta lækkun aflamarks þorsks fyrir næsta fiskveiðiár. Stofnunin leggur því til að heildarafli lækki í rúmelga 222 þúsund tonn í tæplega 209 þúsund tonn.

Sér fram á milljarða­tap ef þorsk­kvóti verður minnkaður frekar

Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) segist sjá fram á að útflutningstekjur af sjávarafurðum dragist saman um allt að sjö milljarða króna fari sjávarútvegsráðherra að ráðlegginum Hafrannsóknastofnunar um minni þorskkvóta.

Patreksfjörður aflahæsta höfnin á strandveiðunum

Patreksfjörður er aflahæsta höfnin eftir fyrsta mánuð strandveiða sumarsins og jafnframt sú höfn þar sem flestir bátar hafa landað. Alls hafa 370 tonn borist þar á land frá 61 báti, samkvæmt yfirliti frá Landssambandi smábátaeigenda. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×