Golf

Fagnaði loksins sigri á risamóti eftir 40 ár sem kylfusveinn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Matt Fitzpatrick og Billy Foster með verðlaunagripinn eftir sigurinn á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi.
Matt Fitzpatrick og Billy Foster með verðlaunagripinn eftir sigurinn á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. David Cannon/Getty Images

Englendingurinn Matt Fitzpatrick kom, sá og sigraði á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi um helgina, en sigurinn var ekki síst ánægjulegur fyrir kylfusveininn Billy Foster sem hefur verið í bransanum í 40 ár.

Hinn 27 ára gamli Fitzpatrick hafði betur eftir hörkukeppni við Scottie Scheffler - efsta kylfing heimslistans - og Will Zalatoris. Aðeins munaði einu höggi á kylfingunum.

Þegar ljóst var að sigurinn var í höfn gat kylfusveinninn Billy Foster ekki haldið aftur að tilfinningum sínum. Hann grúfði andlit sitt í höndunum og gleðitárin streymdu fram.

„Eftir 40 ár hafa margir af vinum mínum unnið risamót með kylfingunum,“ sagði Foster eftir að sigurinn var í höfn.

Eins og áður segir hefur Foster verið lengi í bransanum, en hann hefur unnið með kylfingum á borð við Darren Clarke, Thomas Bjørn og Lee Westwood. Hann og Westwood unnu saman í tíu ár, en á þeim tíma var kylfingurinn níu sinnum meðal efstu þriggja manna á risamótum og þrisvar endaði hann í öðru sæti.

„Darren Clarke átti sína möguleika á sínum tíma, ég var kylfusveinn hjá Thomas Bjørn þegar hann endaði í glompunni og tapaði og Westwood þegar hann tapaði fyrir [Phil] Mickelson á The Masters. Þetta er mikið af slæmum minningum en þegar sigurinn var í höfn í dag þá var það algjör léttir.“

„Ég hef áður talað um það að það var eins og ég væri með apa á bakinu en ég held að það hafi í rauninni verið fullvaxin górilla. Það var gott að losna við hana af bakinu því hún var farin að þreyta mig,“ sagði Foster léttur.

Foster segist oft hafa hugsað um þetta augnablik og var alveg með á hreinu hvað tæki við næstu daga.

„Eins og ég sagði þá var þetta algjör léttir. Ég mun njóta þess í kvöld og alla næstu viku, svo mikið er víst. Það verður eitthvað partýstand og nokkrir bjórar drukknir,“ sagði kátur Foster að lokum.

Gleðin var ósvikin þegar sigurinn var í höfn.Warren Little/Getty Images

Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×