Innlent

Reyndi að flýja lögreglu á hlaupum

Kjartan Kjartansson skrifar
Fótfráir lögreglumenn hlupu uppi ökumann sem er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Fótfráir lögreglumenn hlupu uppi ökumann sem er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Vísir/Vilhelm

Ökumaður bifreiðar sem lögreglumenn hugðust stöðva gaf í og reyndi að komast undan. Lögreglumenn hlupu hann uppi eftir að hann yfirgaf bifreiðina og reyndi að komast undan á tveimur jafnfljótum.

Bifreiðin var á ferð í póstnúmeri 104 þegar lögreglumennirnir ætluðu að stöðva hana, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ökumaðurinn gaf hins vegar í en eftir stuttan spöl ók hann inn á bílastæði og hljóp á brott. Hann var hlaupinn uppi af lögreglumönnum og handtekinn. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda.

Í póstnúmeri 108 var maður handtekinn vegna gruns um líkamsárás. Hann verður vistaður í fangageymslu þar til hægt verður að taka af honum skýrslu.

Í Hafnarfirði var ekið á vegfaranda en ekki er vitað um slys á viðkomandi. Annars staðar í bænum lentu bifreið og létt bifhjól saman. Minniháttar tjón og slys er sagt hafa orðið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×