Viðskipti erlent

Hækka stýrivexti í fyrsta sinn í ellefu ár

Eiður Þór Árnason skrifar
Christine Lagarde, seðlabankastjóri Evrópu, segir verðbólguna vega sífellt þyngra.
Christine Lagarde, seðlabankastjóri Evrópu, segir verðbólguna vega sífellt þyngra. Ap/Peter Dejong

Evrópski seðlabankinn hyggst færa stýrivexti sína upp um 0,25 prósentustig í júlí sem verður fyrsta hækkunin í ellefu ár. Þá boðar seðlabankinn aðra hækkun í september sem gæti reynst umfangsmeiri ef ekki tekst að koma böndum á verðbólguna.

Bankinn fylgir þar með í fótspor fleiri seðlabanka víða um heim sem keppast nú við að hætta að ýta undir viðsnúning hagkerfa eftir heimsfaraldur kórónuveiru og beita þess í stað tækjum sínum til að halda aftur af vaxandi verðbólgu.

Tilkynning evrópska seðlabankans er til marks um stefnubreytingu eftir tímabil þar sem stýrivöxtum hefur verið haldið í lágmarki. AP-fréttaveitan greinir frá þessu en 25 manna peningastefnunefnd seðlabankans segir að versnandi verðbólga hafi reynst evrópskum hagkerfum mikil áskorun. Verðbólga mælist nú 8,1% í evruríkjunum nítján, langt fyrir ofan 2% markmið evrópska seðlabankans.

Hækkanir haft mikið að segja

Stríð Rússa í Úkraínu hefur haft umtalsverð áhrif á hagkerfi heimsins, og leitt til mikillar verðhækkunar á jarðefnaeldsneyti. Sú hækkun og aðgerðir sem miða að því að draga úr kaupum á olíu og gasi frá Rússlandi hefur haft mikið að segja fyrir Evrópuríki sem reiða sig mörg hver á jarðefnaeldsneyti frá ríkinu.

Christine Lagarde, seðlabankastjóri Evrópu, sagði á blaðamannafundi í Amsterdam í dag að árásir Rússa í Úkraínu haldi áfram að setja mark sitt á hagkerfi Evrópu og víðar. Stríðið hafi raskað vöruviðskiptum, leitt til skorts á hinum ýmsu hráefnum og ýtt undir miklar verðhækkanir á orku og nytjavarningi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×