Viðskipti innlent

Segja stjórn Festar hafa látið Eggert fara

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Eggert lætur af störfum 1. ágúst næstkomandi eftir farsæla forstjóratíð.
Eggert lætur af störfum 1. ágúst næstkomandi eftir farsæla forstjóratíð.

Viðskiptablaðið fullyrðir í frétt sem birtist á vb.is í gær að Eggerti Þór Kristóferssyni, forstjóra Festar hf., hafi verið sagt upp. Þetta hefur blaðið eftir ónafngreindum heimildarmönnum.

Í frétt blaðsins segir að ólga sé innan hluthafahóps Festar vegna málsins en að flestir 20 stærstu hluthafa félagsins hafi fyrst frétt af því að Eggert væri að hætta þegar tilkynning þess efnis var send Kauphöllinni. 

Þrettán lífeyrissjóðir séu meðal stærstu hluthafanna, sem eigi um 70 prósent hlutafjár félagsins.

Ólgan er sögð snúa að því að rekstur Festar hafi gengið vel; til að mynda hafi Úrvalsvísitalan lækkað um 21 prósent á árinu en Festi um 5 prósent.

Í tilkynningunni til Kauphallarinnar sagði að Eggert hefði sagt starfi sínu lausu frá og með 1. ágúst næstkomandi og að gengið hefði verið frá starfslokum við hann. Stjórn fyrirtækisins hefði átt farsælt samstarf við Eggert undanfarin ár, í gegnum mikinn uppbyggingarfasa.

„Ég hef verið lánssamur að vinna með frábæru samstarfsfólki á þessum árum sem hafa gert Festi og dótturfélög af því sem þau er í dag. Ég mun sakna þess að vinna með þessu fólki en er einnig spenntur fyrir því sem framtíðin ber í skauti sér,“ var haft eftir Eggerti.

„Algjörlega úti á túni“

Mannlíf birti hins vegar umfjöllun í kjölfarið þar sem starfslok Eggerts voru tengd við frásögn Vítalíu Lazarevu af meintri ósæmilegri hegðun þriggja manna í sumarhúsaferð. Meðal þeirra voru Hreggviður Jónsson og Þórður Már Jóhannesson, sem eru meðal hluthafa í Festi.

Hafði Mannlíf það eftir ónafngreindum heimildarmönnum að það hefði meðal annars verið fyrir tilstilli Hreggviðs og Þórðar að Eggerti var sagt upp störfum. Vítalía greindi sjálf frá því að Eggert hefði verið einn af fáum sem hefði stutt hana eftir að hún steig fram.

Sjálfur vildi Eggert ekki kannast við að hafa verið sagt upp þegar Mannlíf hafði samband við hann. „Ég held að þetta sé algjörlega úti á túni, því miður,“ sagði hann.


Tengdar fréttir

Segir Eggert einn fárra sem hafi hlustað á hana

Vítalía Lazareva segir Eggert Þór Kristófersson, fráfarandi forstjóra Festar hf., einn fárra manna sem hafi talað við hana eftir að hún steig fram og lýsti kynferðisofbeldi, sem hún sakar hátt setta menn í samfélaginu um að hafa beitt sig.

Eggert hættir sem forstjóri Festar

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festar hf. hefur sagt starfi sínu lausu frá og með 1. ágúst næstkomandi. Gert hefur verið samkomulag um starfslok Eggerts en Festi rekur meðal annars Krónuna, Elko og N1.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×