Neytendur

Kalla eftir að stjórn­völd bregðist við síhækkandi elds­neytis­verði

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Óttar Kolbeinsson Proppé skrifa
Runólfur Ólafsson,framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda.
Runólfur Ólafsson,framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Vísir/Egill

Félag íslenskra bifreiðaeigenda kallar eftir því að stjórnvöld bregðist við síhækkandi eldsneytisverði, sem hefur aldrei verið hærra. Framkvæmdastjóri félagsins segir hækkanirnar sérstaklega koma niður á þeim sem hafi minna á milli handanna og þeim sem þurfi að ferðast langar vegalengdir. 

„Þetta er auðvitað mjög óeðlilegt ástand. Við sjáum það að lítraverðið hefur bara farið daghækkandi núna undanfarið og við höfum aldrei séð svona verð áður. Það má heldur ekki gleyma því að þetta hefur veruleg áhrif á vísitöluna og þar með allar skuldbindingar fólks,“ sagði Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda í kvöldfréttum Stöðvar 2. 

Þegar fréttastofa tók saman bensínverð í dag kostaði lítrinn á N1 325,9 krónur en þegar fréttamaður okkar mætti á N1 Hringbraut til að ræða við Runólf í beinni útsendingu hafði lítraverðið hækkað upp í 328,9 krónur. Runólfur segir ljóst hvað þurfi að gera í málinu.

Bensínverðið á N1 Hringbraut var komið upp í 328,9 krónur á lítrann um hálf sjö í kvöld.Vísir/Egill

„Það er ósköp ljóst að okkar mati að það þarf að gera eitthvað á þessum tímapunkti og það hefur verið gert áður. Mörg stjórnvöld í kring um okkur eru að gera það,“ segir Runólfur.

Hann segir að stjórnvöld hafi ekki brugðist beint við kalli FÍB.

„Nei, í rauninni bara óformlega í gegn um fjölmiðla og þá hefur þessu verið ruglað saman við kolefnisútlosun og eitthvað slíkt en þarna er auðvitað brennandi þörf til að grípa til aðgerða og auðvitað kemur þetta sérlega illa niður á þeim sem hafa minna á milli handanna og líka á þeim sem hafa um lengri veg að fara, til dæmis til að sækja þjónustu eða vinnu,“ segir Runólfur. 

Hann segir rök stjórnvalda um að bensínverð sé svo hátt vegna kolefnisskatts ekki standast.

„Það hafa verið ein af rökunum en nú hefur verið óeðlilegt ástand. Við erum að sjá að lítraverðið hefur hækkað um fimmtíu prósent á heimsmarkaði frá því að átökin í Úkraínu hófust og hefur hækkað um 100 prósent ef við förum eitt ár aftur í tímann þannig að  þetta er mjög óeðlilegt ástand,“ segir Runólfur.

„Við ráðum ekki heimsmarkaðsverðinu en við ráðum sköttunum sem er helmingurinn af útsöluverðinu, þessum 328,9 krónum.“


Tengdar fréttir

Verð­bólga í 7,6 prósent og ekki mælst meiri í tólf ár

Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 0,77% milli mánaða og stendur nú í 539,5. Matarverð, húsnæðiskostnaður og bensín er á meðal þess sem hefur hækkað umtalsvert frá síðasta mánuði og orsakar hækkun vísitölu neysluverðs, en verðbólga hefur ekki mælst meiri í tólf ár.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×