Neytendur

Bílaleigur stórauka bílakaup en horfa í auknum mæli til bensín- og dísilbíla

Kjartan Kjartansson skrifar
visir-img
Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

Fleiri horfa nú til bensín- og dísilbíla, sérstaklega bílaleigur, eftir að verð á tengiltvinnbílum hækkaði í vor. Stóraukin umsvif bílaleiga eru meginástæða þess að sala á bílum jókst verulega á milli ára fyrstu mánuði ársins.

Sala nýrra fólksbíla jókst um 63% á fyrstu fimm mánuðum ársins borið saman við sama tímabil í fyrra. Nú hafa 6.844 nýi fólksbílar selst, þar af 2.223 í maí samkvæmt tölum Bílgreinasambandsins.

Það sem réði mestu um aukninguna á milli ára voru stórinnkaup bílaleiga á nýjum fólksbílum. Þær hafa keypt 3.333 nýja bíla það sem af er ári sem er 155% fjölgun frá sama tímabili í fyrra. Kaup þeirra á fólksbílum tvöfaldaðist á milli ára í maí.

Fólksbílakaup einstaklinga jukust um fjórðung á milli ára. Einstaklingar hafa keypt 2.624 bíla það sem af er ári.

Önnur fyrirtæki en bílaleigur hafa keypt 808 nýjar fólksbifreiðar á árinu en það er fjölgun um fjögur prósent frá því í fyrra.

Nýorkubílar rúmur helmingur nýrra bíla

Svonefndir nýorkubílar, rafmagns-, tengiltvinn- og metanbílar, voru rétt rúmlega 57% allra seldra nýrra fólksbíla á fyrstu mánuðum ársins. Hlutfallið var um 46% á sama tíma í fyrra. Rafmagnsbílar voru 29,46% af heildinni en tengilvinnbílar 27,57%.

Bílgreinasambandið bendir á að nú sé fyrirsjáanlegt að verð á tengiltvinnbílum hækki þar sem stjórnvöld hafa boðað afnám ívilnana. 

Fjöldatakmark um að aðeins fyrstu 15.000 seldu tengiltvinnbílarnir fengju ívilnanir náðist í apríl og var mikill gangur í sölu á þeim síðustu daga þess mánaðar og fyrstu daga maí. Þannig voru 423 tengiltvinnbílar skráðir fyrstu vikuna í maí en aðeins fjórir vikuna á eftir. Eftir að ívilnun stjórnvalda féll úr gildi hafa 207 tengiltvinnbílar verið skráðir.

Greinilegt er að mati sambandsins að fleiri horfi nú til bensín- og dísilbíla, sérstaklega bílaleigur, vegna minnkandi samkeppnishæfni tengiltvinnbíla.

„Líklegt verður að teljast að það að stjórnvöld hafi ekki hlustað á rök Bílgreinasambandins og fleiri samtaka um þær afleiðingar sem þetta muni hafa til lengri tíma og muni setja markmið stjórnvalda í loftlagsmálum í uppnám þar sem hægja mun á orkuskiptum í samgöngum,“ segir í tilkynningu Bílgreinasambandsins.

Hlutfall vistvænna bílaleigubíla átti að aukast áfram

Hraðari innleiðing vistvænna bílaleigubíla er á meðal aðgerða í áætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Bílaleigur hafi verið kaupendur að um 40% af nýseldum bílum á landinu og það hlutfall sér hvergi svo hátt í heiminum.

Hlutfall vistvænna bifreiða af nýskráðum bifreiðum hjá bílaleigufyrirtækjum fór úr fjórum prósentum árið 2019 í fjórtán prósent árið 2020. Í aðgerðaáætluninni frá 2020 var gert ráð fyrir að hlutfallið hækkaði enn frekar í fyrra og í ár með nýjum ívilnunum.

Samkvæmt tölum Bílgreinasambandsins hefur hlutfall nýorkubíla aukist verulega í innkaupum bílaleiga á milli ára. Um 65% fólksbílanna sem þær hafa keypt til þessa eru tengitvinn-, blendings- eða rafbílar. Sérstaklega fjölgaði tengiltvinnbílum hlutfallslega í innkaupunum. Þeir voru 9,63% af nýjum fólksbílum sem bílaleigur keyptu fyrri hluta árs í fyrra en voru rétt tæp 35% í ár.

Hlutfall hreinna rafbíla er þó tiltölulega látt og lækkar raunar á milli ára. Þeir voru 4,89% af bílum sem bílaleigurnar keyptu á fyrstu mánuðum ársins en þeir voru 5,96% á sama tíma í fyrra.

Fréttin hefur verið uppfærð með nánari tölum um bílainnkaup bílaleigufyrirtækjanna.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×