Samstarf

Parka Camping bókunar­vélin bjargar buguðum ferða­fjöl­skyldum

Parka
Íslendingar voru mikið á ferðinni síðasta sumar og nýttu sér Parka bókunarvélina óspart. Kerfið sannaði sig rækilega og í ár hafa fleiri tjaldsvæði bæst við.
Íslendingar voru mikið á ferðinni síðasta sumar og nýttu sér Parka bókunarvélina óspart. Kerfið sannaði sig rækilega og í ár hafa fleiri tjaldsvæði bæst við.

„Það gerir ferðalagið svo miklu ánægjulegra og þægilegra að geta kíkt í símann að morgni og séð hvort það er laust pláss þar sem besta veðrið er í stað þess að komast að því að allt er fullt þegar við erum mætt á staðinn með bugaða og grenjandi krakka í aftursætinu,“ segir Arna Haraldsdóttir markaðsstjóri Parka en á vefsíðu Parka er hægt að bóka pláss á tjaldstæðum um allt land á einfaldan hátt.

Skipulagðir og óskipulagðir nýta sér bókunarvélina

Á vefsíðunni er yfirlit yfir tjaldsvæði og hægt er að setja inn leitarorð til að sía út þá þjónustu sem sóst er eftir, til dæmis aðgang að rafmagni eða leiksvæði. Á síðunni má sá hvar er laust og bóka í símanum. Margir eru löngu búnir að tryggja sér pláss á sínu uppáhalds tjaldstæði fyrir sumarið meðan aðrir ætla að láta veðurspána ráða. Arna segir að það megi nefnilega skipta Íslendingum í tvær týpur þegar kemur að tjaldútilegum.

„Annars vegar er það skipulagða fólkið er löngu búið að ákveða hvert það ætlar að fara og bókar allt með góðum fyrirvara heima í sófa. Það rennir svo í bara í plássið sitt á tjaldstæðinu með allt klárt. Svo er það spontant fólkið sem skellir sér af stað með stuttum fyrirvara og bókar bara í símanum þegar það kemur að skilti með upplýsingum frá Parka. Það er nefnilega ekki nauðsynlegt að forpanta, það er alveg hægt að elta bara sólina,“ segir Arna, enda er sá ferðamáti vinsæll á landi þar sem veðrið er óútreiknanlegt.

Mikil ánægja með Parka Camping og fleiri tjaldsvæði bætast við

Íslendingar voru mikið á ferðinni síðasta sumar og nýttu sér Parka bókunarvélina óspart. Kerfið sannaði sig rækilega og í ár hafa fleiri tjaldsvæði bæst við. Parka Camping bókunarvélin auðveldar einnig rekstraraðilum að halda úti starfsemi en með henni er ekki nauðsynlegt að hafa starfsfólk á svæðinu öllum stundum. Arna nefnir tjaldsvæði á hálendinu sem dæmi þar sem þó þarf að innheimta gjald til að standa undir rekstrarkostnaði.

„Parka Camping bókunarvélin er einnig hentug þar sem landeigendur vilja hafa tjaldsvæði opið á veturna en mikil aukning er á ferðalögum á öðrum tímum en yfir hásumarið, sérstaklega húsbílaferðalög. Húsbílar þurfa að komast í rafmagn og fyrir það þarf að vera hægt að rukka, sem er einfalt með þessu kerfi,“ segir Arna.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×