Að taka kolin fram yfir bæjarlækinn Herdís Sólborg Haraldsdóttir skrifar 20. maí 2022 08:01 Í raun fyrir ekki svo löngu síðan, var drengur sendur í sveit fyrir vestan. Hann var af fyrstu kynslóð borgarbarna, þeirri sem fór í rútum landshluta á milli og oftar en ekki til margra mánaða dvalar. Þessir flutningar eru ein birtingarmynd hjarðhegðunar Íslendinga þess tíma. Þetta tíðkaðist bara. Hugsunin að baki þessu var engu að síður margslungin, pólitísk og persónuleg. Bærinn sem um ræðir var eins og margir bæir þess tíma, staðsettur ofarlega í hlíð við sjálfan bæjarlækinn. Öllu neðar var hver. Drengurinn náði illa að tengjast öðrum á bænum og fylgir ekki sögunni hvort staðið hafi á þeim eða honum. Þar að auki komst hann seint og illa til verka. Bændunum varð fljótt ljóst að drenginn gætu þau ekki tekið aftur. Það að vera verklaus var eitt, en að taka ekki þátt í samtali um störfin var svo annað. Jörðin bar ekki marga og þessum var sannarlega ofaukið. Um mitt sumar tekur annað þeirra tveggja af skarið og gengur til drengsins. Drengurinn, enn djúpt í sínum hugsunum, hvorki heyrði né meðtók tiltalið. Þvert á móti þá var hann heldur upp með sér yfir athyglinni og greip fegins hendi tækifærið sem í nærverunni fólst. Án óþarfa málalengina dró hann upp nákvæma teikningu, myndskreytta. Heilt sumar lá undir. Með sínu hugviti hafði honum tekist að leysa ráðgátuna um það hvernig nýta mætti hverinn og fallvatnið í læknum til þess að hita bæinn. Það er skemmst frá því að segja að bændurnir bæði hlustuðu og treystu drengnum fyrir verkinu. Í lok sumars gátu þau lagt kolunum og hitað bæinn með þeim auðlindum sem þau höfðu aðgang að. Drengurinn hafði kannski ekki verið öflugur á hrífunni en hann breytti lífsskilyrðum ábúenda og þankagangi til framtíðar og fór sjálfur vel nestaður af reynslu og innsýn til borgarinnar. Eins og í þessari sögu þá er það svo að þegar hugvitið verður að nýsköpun þá getur það fleytt okkur fram, en líka aftur. Hvoru tveggja getur tortímt og auðgað og það jafnvel á sama tíma. Vel heppnaðri nýsköpunarviku er að ljúka og mikilvægt að halda áfram á lofti mikilvægi fjölbreytni og ólíkra sjónarmiða þegar kemur að því að þróa nýjar lausnir á viðfangsefnum nú og til framtíðar. Sú nýsköpun sem við þurfum að vinna að í dag snýr að mörgu leyti að því bjarga okkur sjálfum. Ekki bara forréttindahópunum, heldur heildinni. Það felur í sér að við þurfum á köflum að hægja á okkur, hlusta og hleypa fleirum að, enda er ekki á allra færi að laga allt. Ólík sjónarmið þurfa að koma saman. Í dæminu hér að ofan þá býr drengurinn við ákveðin forréttindi og var fljótur að frá traust frá ábúendum. Þetta er ekki alltaf svona. Við erum öll með okkar innbyggðu skekkjur og fordóma sem verða í vegi fyrir því að góðar lausnir nái fram að ganga. Hugvitið er ekki hindrun. Það er allstaðar og það er eins og annað, jafn fjölbreytt og við erum mörg. Hindrunin er hugarfar þeirra sem loka á tækifærin sem eru fólgin í fjölbreyttu hugviti, af því að þeir eru með sínu innbyggða skekkju og fordóma. Því fylgir ábyrgð að skapa eitthvað nýtt og því fylgir ábyrgð að fjárfesta í og fjármagna nýsköpun. Það er óhagkvæmd, ósjálfbært og óskynsamlegt nú og til framtíðar að leyfa nýsköpun að þróast og vaxa í skjóli forréttindahópa. Það eru til ótal leiðir og sannreynd aðferðafræði sem getur hjálpað einstaklingum, fjárfestum og fyrirtækjum að viðurkenna og vinna með þessa innbyggðu skekkju sem býr í okkur öllum. Allt þetta krefst ígrundaðra vinnubragða og viðhorfsbreytinga sem gerast ekki af sjálfu sér. Staðan er nefnilega sú í dag að ef ekkert er gert, komumst við ekki mikið lengra með hrífuna, en í kringum okkur sjálf. Höfundur er framkvæmdastjóri Irpa ehf. og ráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Um læknisvottorð til vinnuveitenda Gunnar Ármannsson Skoðun Ljúgandi málpípa Sjálfstæðisflokksins Tómas Kristjánsson Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins) Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson Skoðun Nokkrar góðar ástæður til að svindla á örorkukerfinu Eiður Welding Skoðun Tvö hundruð milljarða afsláttur VG Inga Lind Karlsdóttir Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun „Betur borgandi ferðamenn“ Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Fjórar brýnar ástæður til að hætta viðskiptum við Rapyd Björn B. Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins) Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson skrifar Skoðun „Betur borgandi ferðamenn“ Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Brosum breitt Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Um læknisvottorð til vinnuveitenda Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ert þú í tengslum? Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Hin hljóða millistétt Bjarki Ómarsson skrifar Skoðun Af hverju er verðlag hér tvöfalt hærra en í Evrópu? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Þegar hríðinni slotar Ásta F. Flosadóttir skrifar Skoðun Nemendalýðræði á brauðfótum Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Mikilvægi kínverskra ferðamanna fyrir Ísland og áhrif beins flugs frá Kína Guðmundur Franklín Jónsson skrifar Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson skrifar Skoðun Þannig gæti Alþingi sameinast um orkumál Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Samfylkingin – Með og á móti Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg stuðlar ekki að sérstöðu eins fyrirtækis á BSÍ Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Sex liða áætlun til að koma á jafnvægi í húsnæðismálunum. Gunnar Einarsson skrifar Skoðun Ljúgandi málpípa Sjálfstæðisflokksins Tómas Kristjánsson skrifar Skoðun Hættur kynhlutleysisins Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Ólögleg áfengissala Ari Jónsson skrifar Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Gerræði ráðherranna Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Með lygina að vopni Páll Hermannsson skrifar Skoðun Leyfið til að drepa langreyði - óforsvaranleg ákvörðun Micah Garen skrifar Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun UNICEF skóli Laugardals við Kirkjuteig Tryggvi Scehving Thorsteinsson skrifar Skoðun Leggðu rafskútunni vel í Kópavogi Bergur Þorri Benjamínsson skrifar Skoðun Fjórar brýnar ástæður til að hætta viðskiptum við Rapyd Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Ekkert bús í búðir! Jódís Skúladóttir skrifar Skoðun Fiskeldi og Vestfirðir Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tvö hundruð milljarða afsláttur VG Inga Lind Karlsdóttir skrifar Skoðun Bætt þjónusta og minni kostnaður, er hægt að biðja um það betra? Hrefna Eyþórsdóttir skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Mikilvægi kínverskra ferðamanna fyrir Ísland og áhrif beins flugs frá Kína Guðmundur Franklín Jónsson skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun