Innlent

Loka­tölur í Reykja­vík: Meiri­hlutinn fallinn og stór­sigur Fram­sóknar

Ritstjórn skrifar
Þessir 23 fulltrúar náðu kjöri í Reykjavík.
Þessir 23 fulltrúar náðu kjöri í Reykjavík. Visir

Framsóknarflokkurinn er þriðji stærsti flokkurinn í Reykjavík eftir ótrúlegan árangur í kosningunum í nótt. Flokkurinn sem hafði engan borgarfulltrúa undanarin fjögur ár náði fjórum mönnum inn. Meirihlutinn í borginni er fallinn.

Á kjörskrá í Reykjavík eru 100.405. 23 borgarfulltrúar eiga sæti í borgarstjórn þar sem Samfylkingin, Píratar, Viðreisn og VG hafa starfað saman í meirihluta frá árinu 2018.

Sjálfstæðisflokkurinn var með átta fulltrúa, Sósíalistaflokkurinn og Flokkur fólksins með einn fulltrúa hvor hafa setið í minnihluta.

Fráfarandi meirihluti fær tíu fulltrúa af 23. Fróðlegt verður að fylgjast með þreyfingum flokkanna í borginni næstu daga við myndun nýs meirihluta.

Svona varð niðurstaðan í höfuðborginni:

  • Framsókn 11.227 atkvæði - fjórir fulltrúar
  • Viðreisn 3.111 atkvæði - einn fulltrúi
  • Sjálfstæðisflokkur 14.686 atkvæði - sex fulltrúar
  • Reykjavík – Besta borgin 134 atkvæði - núll fulltrúar
  • Flokkur fólksins 2.701 atkvæði - einn fulltrúi
  • Sósíalistar 4.618 atkvæði - tveir fulltrúar
  • Miðflokkur 1.467 atkvæði - núll fulltrúar
  • Píratar 6.970 atkvæði - þrír fulltrúar
  • Samfylking 12.164 atkvæði - fimm fulltrúar
  • Vinstri græn 2.396 atkvæði - einn fulltrúi
  • Ábyrg framtíð 475 atkvæði - núll fulltrúar

Að neðan má sjá grafíska framsetningu á úrslitunum í nótt.

Eftirfarandi náðu kjöri í borgarstjórn: 

  • Einar Þorsteinsson (B)
  • Árelía Eydís Guðmundsdóttir (B)
  • Magnea Gná Jóhannsdóttir (B)
  • Aðalsteinn Haukur Sverrisson (B)
  • Þórdís Lóa Þórhallsdóttir (C)
  • Hildur Björnsdóttir (D)
  • Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir (D)
  • Kjartan Magnússon (D)
  • Marta Guðjónsdóttir (D)
  • Björn Gíslason (D)
  • Friðjón R. Friðjónsson (D)
  • Kolbrún Baldursdóttir (F)
  • Sanna Magdalena Mörtudóttir (J)
  • Trausti Breiðfjörð Magnússon (J)
  • Dóra Björt Guðjónsdóttir (P)
  • Alexandra Briem (P)
  • Magnús Davíð Norðdahl (P)
  • Dagur B. Eggertsson (S)
  • Heiða Björg Hilmisdóttir (S)
  • Skúli Þór Helgason (S)
  • Sabine Leskopf (S)
  • Hjálmar Sveinsson (S)
  • Líf Magneudóttir (V)
Alls eru 100.405 á kjörskrá í Reykjavík. Vísir/Rakel


Tengdar fréttir

Nýjustu tölur úr Fjallabyggð

Sjálfstæðisflokkurinn missir einn fulltrúa frá síðustu kosningum og nær tveimur inn en Jafnaðarfólk og óháðir nældu í þrjá fulltrúa.

Nýjustu tölur úr Múlaþingi

Þrír flokkar fengu þrjá fulltrúa kjörna í fyrstu sveitarstjórnarkosningunum í Múlaþingi. Áhugavert verður að fylgjast með meirihlutamyndun fram undan.

Nýjustu tölur frá Vestmannaeyjum

Allt er óbreytt í Vestmannaeyjum eftir sveitarstjórnarkosningarnar í ár. Meirihluti Eyjalistans og Fyrir Heimaey hélt velli í kosningunum, hefur nú fimm fulltrúa af níu en hafði áður fjóra af sjö.

Nýjustu tölur úr Ísafjarðarbæ

Ísafjarðarlistinn kom, sá og sigraði í sveitarstjórnarkosningunum í Ísafirði þetta árið. Flokkurinn náði fimm fulltrúum af níu og náði þar með meirihlutanum með því að stela fulltrúa af Sjálfstæðisflokknum.

Nýjustu tölur úr Reykjanesbæ

Meirihlutinn í Reykjanesbæ styrkti stöðu sína að loknum sveitarstjórnarkosningunum. Samfylkingin fær þrjá fulltrúa, Framsókn sömuleiðis og Bein leið einn. Alls sjö fulltrúa af ellefu.

Nýjustu tölur úr Fjarðabyggð

Meirihluti Fjarðalistans og Framsóknar og óháðra heldur. Framsókn bætir við sig einum en Fjarðalistinn missir tvo.

Nýjustu tölur frá Akranesi

Framsóknarflokkurinn bætti við sig einum manni í bæjarstjórn á Akranesi í sveitarstjórnarkosningunum. Samfylkingin og Framsókn eru í meirihluta og halda honum örugglega. 

Nýjustu tölur úr Árborg

Sjálfstæðisflokkurinn bættir við sig tveimur fulltrúum í sveitarfélaginu Árborg og er nú með hreinan sex fulltrúa meirihluta. Framsókn bættir sömuleiðis við einum fulltrúa og hefur nú tvo. Miðflokkurinn missir sinn eina bæjarfulltrúa en Samfylking og Áfram Árborg halda sínum mönnum.

Nýjustu tölur úr Mosfellsbæ

Framsóknarflokkurinn er orðinn stærsti flokkurinn í Mosfellsbæ. Flokkurinn átti ekki fulltrúa í bæjarstjórn á síðasta kjörtímabili en fékk fjóra fulltrúa í kosningunum í nótt.

Nýjustu tölur úr Garðabæ

Sjálfstæðisflokkurinn heldur hreinum meirihluta í Garðabæ þrátt fyrir að tapa einum fulltrúa. Flokkurinn hefur sjö fulltrúa af ellefu að loknum kosningum.

Nýjustu tölur frá Akureyri

Bæjarlistinn er í lykilstöðu þegar kemur að myndun meirihluta eftir kosningarnar. Flokkurinn bætir við sig fulltrúa og er stærstur í bæjarstjórn með þrjá fulltrúa.

Nýjustu tölur frá Kópavogi

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn halda sex fulltrúa meirihluta í Kópavogi að loknum sveitarstjórnarkosningunum í nótt. Vinir Kópavogs, nýtt framboð, náði inn tveimur bæjarfulltrúum.

Nýjustu tölur frá Hafnarfirði

Samfylkingin bætti við sig tveimur bæjarfulltrúum í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum. Flokkurinn er á pari við Sjálfstæðisflokkinn en hvor flokkur er með fjóra bæjarfulltrúa.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×