Golf

Ólafía Þórunn leikur er­lendis í fyrsta skipti í tæp tvö ár

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir snýr aftur síðar í þessum mánuði.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir snýr aftur síðar í þessum mánuði. Vísir/Getty

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er skráð til leiks á Jabra Ladies Open-mótinu þann 19. til 21. maí. Það verður hennar fyrsta mót erlendis síðan í ágúst 2020.

Þetta kemur fram í viðtali Ólafíu Þórunnar við vefinn Golf.is. Ólafía Þórunn hefur verið í barneignarleyfi eftir að hafa eignast sitt fyrsta barn í júní á síðasta ári. Hún segir það krefjandi að mæta á Evian-völlinn í Frakklandi eftir svo langa pásu.

„Það verður ekkert grín að byrja á Evian-vellinum eftir svona langt hlé. Þetta er virkilega erfiður og krefjandi keppnisvöllur. Ég er samt sem áður mjög spennt að byrja aftur.“

Ólafía Þórunn er búsett í Þýskalandi ásamt eiginmanni sínum og syni.

„Ég ákvað að bíða aðeins með að reyna mig á ný í Bandaríkjunum, þar sem að ég er með mjög takmarkað aðgengi að mótum á LPGA. Ég ætla því að taka mótin sem eru í boði hér í Evrópu. Staðsetning okkar hér í Þýskalandi gerir það einfaldara að geta keyrt á mörg mótin.“

Nokkrir hlutir hafa breyst síðan Ólafa Þórunn varð móðir.

„Ég slæ mun styttra en ég var vön að gera. Það hefur hins vegar gengið nokkuð vel að spila og aðlagast breytingunum. Hreyfingarnar í sveiflunni eru enn til staðar, þetta er eins og að fara hjóla á ný eftir langt hlé,“ útskýrði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur og móðir að endingu í viðtali sínu á Golf.is.

Hún verður ekki eini Íslendingurinn í Frakklandi þessa helgina en Guðrún Brá Björgvinsdóttir er einnig skráð til leiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×