Nketiah kláraði Leeds á fyrstu tíu | Gestirnir settu met

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Eddie Nketiah skoraði tvö fyrstu mörk Arsenal í dag.
Eddie Nketiah skoraði tvö fyrstu mörk Arsenal í dag. EPA-EFE/VINCE MIGNOTT

Arsenal vann 2-1 sigur á Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Bæði mörk heimamanna komu á fyrstu tíu mínútum leiksins en Leeds var manni færri í nær klukkutíma eftir heimskulega tæklingu Luke Ayling.

Eftir aðeins fimm mínútna leik gerði Illan Meslier sig sekan um skelfileg mistök í marki Leeds United. Hann fékk sendingu til baka og var of lengi að athafna sig, Eddie Nketiah fór í pressu sem endaði með því að Meslier setti boltann í Nketiah og í netið.

Fimm mínútum síðar var staðan orðin 2-0 þegar Nketiah kláraði vel eftir sendingu Gabriel Martinelli frá vinstri. Leeds fór svo úr öskunni í eldinni þegar Luke Ayling lét reka sig af velli eftir að henda sér í groddaralega tæklingu þegar ekki var hálftími liðinn af leiknum.

Leeds því tveimur mörkum undir og manni færri þegar klukkutími lifði leiks. Staðan var enn 2-0 í hálfleik og á 66. mínútu minnkuðu gestirnir óvænt muninn. Diego Llorente skoraði þá af stuttu færi eftir að Junior Firpo hafði flikkað hornspyrnu frá vinstri af nær yfir á fjær. Staðan orðin 2-1 og leikurinn hvergi nærri búinn.

Gestunum tókst þó engan veginn að nýta sér meðbyrinn enda manni færri og lauk leiknum með 2-1 sigri Skyttanna. Leeds er þar með í fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni. Leikmenn liðsins hafa þó barist - eða reynt það - í vetur enda Leeds nú það lið sem hefur fengið flest gul spjöld á einu tímabili.

Þegar þrjár umferðir eru eftir er Arsenal með 66 stig í 4. sæti deildarinnar, aðeins stigi á eftir Chelsea í 3. sætinu Leeds er á sama tíma í 18. sæti með jafn mörg stig og Burnley sem er sæti ofar en lakari markatölu. Everton er svo með 35 stig í 16. sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira