Rafíþróttir

Stórmeistaramótið hefst í kvöld með fjórum leikjum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Stórmeistaramótið í CS:GO hefs í kvöld.
Stórmeistaramótið í CS:GO hefs í kvöld.

Stórmeistaramótið í CS:GO hefst í kvöld þegar átta liða úrslitin fara fram. Fjögu efstu lið Ljósleiðaradeildarinnar og fjögur lið sem unu sér inn þátttökurétt á Áskorendamótinu taka þátt.

Liðin fjögur sem unnu sér inn þátttökurétt á Áskorendamótinu eru þau SAGA, BadCompany, Ten5ion og XY eSports. Liðin sem mæta til leiks sem efstu fjögur liðin úr Ljósleiðaradeildinni eru Ármann, Vallea, Þór og deildarmeistarar Dusty.

Átta liða úrslitin byrja í kvöld með leik SAGA og Ármanns klukkan 18:15 en það er önnur af tveim viðureignum þar sem bæði lið léku í Ljósleiðaradeildinni á nýliðnu tímabili.  Klukkan 21:00 er svo komið að deildarmeisturum Dusty gegn BadCompany, allt í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport.

Á morgun eru svo seinni tvær viðureignir átta liða úrslita. Klukkan 18:15 mætast Vallea og Ten5ion og í hinni Ljósleiðaradeildarviðureigninni þar sem Þór og XY eSports eigast við.

Dagskráin á Stórmeistaramótinu.

Undanúrslit og úrslit fara svo fram um næstu helgi þar sem undanúrslitin verða leikin á föstudaginn og úrslitin á laugardaginn. Dagskránna má sjá á meðfylgjandi mynd hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×