Sara kom inn af bekknum er Lyon tryggði sér sæti í undanúrslitum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir í leik með Lyon gegn Juventus á síðustu leiktíð.
Sara Björk Gunnarsdóttir í leik með Lyon gegn Juventus á síðustu leiktíð. Getty/Giuseppe Cottini

Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar í Lyon snéru taflinu við gegn Juventus í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Liðið vann 3-1 sigur eftir að hafa tapað fyrri leiknum 2-1 og er því á leið í undanúrslit.

Sara sat á varamannabekknum stærstan hluta leiksins, en kom inn á sem varamaður og lék seinustu mínúturnar.

Norska landsliðskonan Ada Hegerberg kom Lyon yfir á 33. mínútu og aðeins tveimur mínútum síðar var liðið komið með forystu í einvíginu eftir mark frá Melvine Malard.

Staðan var því 2-0 þegar flautað var til hálfleiks, en Catarina Macario breytti stöðunni í 3-0 á 73. mínútu með frábæru marki og Lyon því komið með tveggja marka forskot í einvíginu.

Andrea Staskova lagaði stöðuna fyrir Juventus þegar um fimm mínútur voru til leiksloka, en nær komst liðið ekki og 3-1 sigur Lyon var staðreynd. Lyon vann einvígið því samanlagt 4-3 og er á leið í undanúrslit þar sem liðið mætir Paris Saint-Germain.

Leikurinn var í beinni útsendingu á Youtube og hægt er að horfa á hann hér fyrir neðan.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira