Körfubolti

Tryggvi og félagar næstneðstir eftir tap í fallbaráttuslag

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Tryggvi í leik með Zaragoza
Tryggvi í leik með Zaragoza vísir/getty

Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Zaragoza eru í slæmum málum í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta eftir tap í fallbaráttuslag í dag.

Tryggvi lék aðeins tólf mínútur þegar liðið beið lægri hlut fyrir Hereda San Pablo Burgos, 78-56, en Burgos liðið var í næstneðsta sæti deildarinnar þegar kom að leik dagsins, tveimur stigum á eftir Zaragoza.

Tryggvi skoraði þrjú stig og tók fimm fráköst á þeim stutta tíma sem hann spilaði í leiknum.

Hefur Zaragoza liðið aðeins unnið einn af síðustu átta leikjum sínum og ljóst að liðsmenn þess þurfa að bíta í skjaldarrendur fyrir lokakaflann en átta umferðir eru eftir af mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×