Arsenal vann 3-2 útisigur á Watford í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn var einkar fjörugur og mörkin í glæsilegri kantinum.
Fyrrum undrabarnið Martin Ødegaard kom Arsenal yfir eftir undirbúning Bukayo Saka strax á fimmtu mínútu leiksins. Adam var þó ekki lengi í paradís en eftirnafnslausu mennirnir Kiko og Cucho léku Arsenal vörnina grátt skömmu síðar.
Kiko tók utan á hlaup hægra megin og fékk boltann, hann sendi boltann inn á teig og Cucho klippti boltann glæsilega í netið. Staðan orðin 1-1 og veislan rétt að byrja.
Þegar sléttur hálftími var liðinn lagði Alexandre Lacazette boltann á Saka sem skoraði með glæsilegu skoti í kringum vítateigslínuna. Staðan orðin 1-2 og þannig var hún í hálfleik.
Gabriel Martinelli kom Arsenal 3-1 yfir í upphafi síðari hálfleiks og virtist sem liðið ætlaði að sigla sigrinum örugglega heim. Moussa Sissoko var ekki þeirrar skoðunar en hann minnkaði muninn í 3-2 skömmu fyrir leikslok en nær komust heimamenn ekki og Arsenal landaði mikilvægum þremur stigum í baráttunni um 4. sætið.
Arsenal er nú í 4. sæti deildarinnar með 48 stig að loknum 25 leikjum. Watford er í 19. sæti með 19 stig, þremur stigum frá öruggu sæti, eftir 27 leiki.