Neytendur

Teslu­eig­endur uggandi vegna ó­bætts vatns­tjóns eins þeirra

Árni Sæberg skrifar
Fjölmargar Teslur hafa verið fluttar til landsins undanfarin ár en nú er óljóst hvort þær þoli íslenska veðráttu.
Fjölmargar Teslur hafa verið fluttar til landsins undanfarin ár en nú er óljóst hvort þær þoli íslenska veðráttu. Vísir/Vilhelm

Eigendur rafbíla af gerðinni Tesla virðast vera uggandi eftir fréttir af óbættu vatnstjóni eins þeirra. Margir þeirra segjast ætla að skipta um tryggingar og sumir íhuga jafnvel að falla frá kaupum á pöntuðum Teslum.

Líkt og greint var frá í Bítinu á Bylgjunni í morgun lenti óheppinn eigandi glænýrrar bifreiðar af gerðinni Tesla Model Y í því að bifreið hans skemmdist illa þegar hann ók henni í poll á dögunum.

Samkvæmt ábyrgðarskilmálum Tesla ber fyrirtækið ekki ábyrgð á tjónum sem verða þegar Teslu-bifreið er ekið í vatn sem er dýpra en 20 sentímetrar, að sögn eigandans.

Þá segist hann óviss um hvort hann fái tjónið bætt hjá tryggingafélagi sínu þar sem tjónið sé klárlega ábyrgðatjón.

Mismunandi skilmálar tryggingafélaga

Tryggingafélagið VÍS birti í dag færslu á Facebook-síðu sinni þar sem vísað er í frétt Vísis og fullyrt að kaskótrygging félagsins bæti tjón þegar vatn skemmir rafhlöðu rafbíls. Þá segir einnig að eigin áhætta hins vátryggða sé alltaf sú sama, óháð því hversu kostnaðarsamt tjón er. 

Meðlimir Facebook-hópsins Tesla eigendur og áhugafólk taka yfirlýsingu VÍS fagnandi og margir þeirra hafa sagst munu færa viðskipti sín frá öðrum tryggingarfélögum til VÍS strax í fyrramálið.

Aðrir hafa þó sínar efasemdir enda eru skilmálar kaskótryggingar VÍS heldur loðnir hvað varðar tjón líkt og hér um ræðir. Þar segir að tryggingin bæti ekki „tjón af völdum þess að vatn flæðir inn í ökutæki eða vélarrými utan bundins slitlags og tjón á bundnu slitlagi ef greinilegt er að vatn hefur safnast fyrir á vegi eða sérstaklega hefur verið varað við hættu á því.“

Starfsmaður Sjóvár, eins helsta keppinautar VÍS, blandaði sér í umræðuna á Facebook-hópnum. „Sem starfsmaður Sjóvá og eigandi Teslubifreiðar langar mig að koma því hér á framfæri að kaskótrygging Sjóvá bætir svona tjón. Eigin áhættan er þó 50%,“ sagði hann.

Ummælin um fimmtíu prósent eigin áhættu féllu vægast sagt í grýttan jarðveg meðal Teslueigenda enda getur altjón á rafhlöðu rafbíla hlaupið á milljónum króna. 

Þegar fréttin er skrifuð hafa 92 ummæli verið látin falla við færslu starfsmannsins. Flestir sem þau rita vanda Sjóvá ekki kveðjurnar og margir segjast ætla að hætta viðskiptum við félagið. 

Sumir slá þó á létta strengi sem endranær. „Hæ ég heiti Arnar er eigandi teslu og vildi láta þig vita að framvegis borga ég bara 50% af iðgjaldinu,“ segir Arnar nokkur, eigandi Teslu-bifreiðar.

Væntanlegir Teslu-eigendur ekki jafnspenntir og áður

Einn meðlimur hópsins Tesla eigendur og áhugafólk birti færslu í hópnum áðan þar sem hann lýsti yfir áhyggjum sínum af málinu enda eigi hann von á glænýrri Tesla Model Y á næstunni.

„Mér finnst það vera deal breaker [innskot blaðamanns: forsendubrestur] að geta ekki keyrt í smá poll án þess að bíllinn verði fyrir tjóni,“ segir hann.

Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa en 42 ummæli hafa verið rituð við færsluna. Þrír sem eiga einnig von á að fá bifreið sömu tegundar afhenta segjast jafnvel íhuga að hætta við kaupin eftir fréttir dagsins.

Aðrir reyna þó að hughreysta þá og segjast hafa keyrt Teslur sínar í hina ýmsu polla án þess að bifreiðum þeirra hafi orðið meint af.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×