Sjóðheitur Bjarki skoraði 15 en þurfti að sætta sig við jafntefli Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. febrúar 2022 21:28 Bjarki Már Elísson í leik með íslenska landsliðinu. EPA-EFE/Petr David Josek Bjarki Már Elísson og félagar hans í Lemgo þurftu að sætta sig við jafntefli í miklum markaleik er liðið tók á móti Nantes í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur urðu 37-37, en Bjarki skoraði hvorki meira né minna en 15 mörk fyrir Lemgo.
Allt frá fyrstu mínútu var allt í járnum og liðin skiptust á að skora. Gestirnir í Nantes virtust þó hálfu skrefi á undan og Bjarki og félagar þurftu að elta. Munurinn í fyrri hálfleik varð aldrei meiri en þrjú mörk, en svo mikill var hann þegar flautað var til hálfleiks. Þegar gegnið var til búningsherbergja var staðan 20-17, gestunum í vil. Sama jafnræði var með liðunum í síðari hálfleik, en Bjarki og félagar skoruðu fyrstu þrjú mörk hálfleiksins og jöfnuðu metin. Þeir komust svo yfir í fyrsta og eina skiptið í leiknum í stöðunni 24-23. Eftir það var þetta sama sagan og í fyrri hálfleik þar sem heimamenn í Lemgo voru að elta. Gestirnir náðu fjögurra marka forskoti í stöðunni 34-30, en heimamenn gáfust ekki upp. Þeir jöfnuðu metin á ný þegar örfáar mínútur voru til leiksloka og niðurstaðan varð jafntefli, 37-37. Bjarki Már var markahæsti maður vallarins með 15 mörk úr jafn mörgum skotum, en þar af komu sex af vítalínunni. Lemgo situr í fjórða sæti B-riðils með níu stig eftir átta leiki, tveimur stigum minna en Nantes sem situr sæti ofar.
Handbolti Mest lesið Kristinn Gunnar sigurvegari Bakgarðshlaupsins í Öskjuhlíð 2025 Sport Mari uppgefin: „Ældi átta sinnum á brautinni“ Sport Beckham reiður: Sýnið smá virðingu Fótbolti Sjáðu Kristin Gunnar koma í mark: „Geðveikt skrítin tilfinning“ Sport Hermann Hauks um hegðun Agravanis: Lið í Evrópu vilja hann ekki út af þessu Körfubolti Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Körfubolti Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Körfubolti „Pabbi og mamma Milka, Hesseldal, Basile og Dinkins hljóta að koma sterk inn í haust“ Körfubolti Áttar sig ekki á Stjörnunni: „Bíð bara eftir því að Garpur poppi þarna upp“ Íslenski boltinn Sveindís Jane slapp við síðasta sætið á íslenska listanum Fótbolti Fleiri fréttir HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Frá Eyjum til Ísraels Haukar fá einn markahæsta mann deildarinnar Lærisveinn Hannesar í tveggja ára bann fyrir hrottalegt brot Dagur líka með sína stráka á sigurbraut Uppgjörið: Bosnía-Ísland 25-34 | Toppsætið tryggt hjá strákunum okkar Alfreð kom Þjóðverjum á EM Önnur landsliðskona leysir Þóreyju Rósu af hólmi Fjalla um ráðningu Þóris: Séní sem á að hjálpa Íslandi Hópurinn gegn Bosníu: Reynir þarf að bíða eftir fyrsta landsleiknum „Þessi vegferð hefur verið draumi líkust“ Haukarnir byrjaðir að fylla í skarð Elínar Klöru Aldís Ásta frábær í fyrsta úrslitaleiknum um titilinn Haukakonur í lokaúrslitin á móti Val Bjarki kallaður inn í landsliðið Sólveig Lára hætt með ÍR Gríðarlega spenna á toppnum en stórleikur Viggós dugði ekki til „Borgar þrjátíu en færð hundrað prósent“ Kolstad rétti úr kútnum og komst í úrslit Lærisveinar Arnórs laumuðu sér upp fyrir lið Guðmundar Sjá meira