Liverpool í kjörstöðu eftir góða ferð til Mílanó

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Þægilegt hjá Liverpool í kvöld.
Þægilegt hjá Liverpool í kvöld. vísir/Getty

Liverpool er með pálmann í höndunum fyrir síðari leikinn gegn Ítalíumeisturum Inter Milan eftir góða ferð til Mílanó í kvöld.

Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en leikurinn endaði á fullkominn hátt fyrir enska liðið og má segja að það hafi verið verðskuldað en heimamenn í Inter áttu ekki eitt skot á mark Liverpool í leiknum.

Brasilíski sóknarmaðurinn Roberto Firmino kom inn af varamannabekknum hjá Liverpool í hálfleik og hann sá um að opna markareikninginn á Giuseppe Meazza þegar hann skoraði á 75.mínútu og kom Liverpool í forystu.

Skömmu síðar, eða á 83.mínútu tvöfaldaði Mohamed Salah forystuna fyrir Liverpool og tryggði þar með enska liðinu 0-2 sigur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira