Enginn klúðrað fleiri vítum í Meistaradeildinni en Messi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. febrúar 2022 11:30 Lionel Messi svekktur eftir að hafa brugðist bogalistin af vítapunktinum í leik Paris Saint-Germain og Real Madrid. getty/Shaun Botterill Lionel Messi bætti enn einu metinu á ferilskrána í leik Paris Saint-Germain og Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í gær. Hann er þó eflaust ekki ýkja stoltur af því.
PSG fékk vítaspyrnu eftir rúman klukkutíma í leiknum á Parc des Princes þegar Dani Carvajal braut á Kylian Mbappé. Messi fór á punktinn en Thibaut Courtois varði spyrnu hans. Þetta var fimmta vítaspyrnan sem Messi klúðrar í Meistaradeildinni. Hann jafnaði þar með met fyrrverandi samherja síns hjá Barcelona, Thierrys Henry. Messi hefur tekið 23 víti í Meistaradeildinni og skorað úr átján þeirra. Fjórar spyrnur hans hafa verið varðar og ein fór í stöngina. Þrátt fyrir að vera einn besti, ef ekki besti, fótboltamaður allra tíma hefur Messi stundum átt í erfiðleikum með að skora af vítapunktinum. Hann hefur til að mynda klúðrað fjórtán af 74 vítum sínum í spænsku deildinni og sex af níu vítum sínum í spænsku bikarkeppninni. Vítaklúðurs Argentínumannsins kom þó ekki að sök fyrir PSG í gær. Liðið vann 1-0 sigur, þökk sé marki Mbappés í uppbótartíma. Seinni leikur PSG og Real Madrid fer fram á Spáni 9. mars næstkomandi.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Guðni Valur Norðurlandameistari Sport Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Enski boltinn Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Manchester City - West Ham | City með pálmann í höndunum Í beinni: Brighton - Man. Utd. | United mætir Brighton í kveðjuleik De Zerbis Í beinni: Arsenal - Everton | Stelur Arsenal titlinum? Í beinni: Liverpool - Wolves | Kveðjuleikur Klopps Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Í beinni: Lokaumferðin í enska | Hvaða lið verður meistari? Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Sjá meira