„Áfengisframleiðsla er vaxandi atvinnuvegur sem skapar störf víða um land og styður við ferðaþjónustuna. Innflutningur á áfengi er sömuleiðis öflug atvinnugrein. Netverzlanir með áfenga drykki hafa rutt sér til rúms. Um leið er ljóst að áfengislöggjöfin er götótt og stjórnvöld virðast ekki geta svarað því skýrt hvað má og hvað má ekki, t.d. hvað varðar áfengisauglýsingar og netsölu áfengis. Með hæstu áfengissköttum í Evrópu er greininni einnig gert erfitt fyrir,“ segir í tilkynningu frá Félagi atvinnurekenda.
Dagskrá
14.00 Setning fundarins – Guðrún Ragna Garðarsdóttir formaður FA
14.05 Ávarp – Jón Gunnarsson innanríkisráðherra
14.15 Baráttan um búsið – Af hverju þörf er á frumkvöðlum í áfengissölu– Þórgnýr Thoroddsen, framkvæmdastjóri Bjórlands
14.30 Hvert stefnum við? – Snorri Jónsson, framkvæmdastjóri Reykjavík Distillery og stjórnarmaður í Samtökum íslenskra eimingarhúsa
14.45 Hvað er í gerjun hjá íslenskum handverksbrugghúsum? – Laufey Sif Lárusdóttir framkvæmdastjóri Ölverks í Hveragerði og formaður Samtaka íslenskra handverksbrugghúsa
15.00 Óvissan er óþægileg – Einar Snorri Magnússon, forstjóri Coca Cola Europacific Partners á Íslandi
15.15 Úrelt löggjöf og ofurskattar – Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA
Fundarstjóri er Anna Kristín Kristjánsdóttir, varaformaður FA.