Innlent

Björgunar­sveitir reikna með fleiri út­köllum seinni partinn

Atli Ísleifsson skrifar
Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segist reikna með að útköll hefðu orðið mun fleiri ef fólk hefði verið á ferðinni.
Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segist reikna með að útköll hefðu orðið mun fleiri ef fólk hefði verið á ferðinni. vísir/vilhelm

Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir að nóttin hafi gengið vel þar sem björgunarsveitir hafi byrjað að fá útköll rétt fyrir fjögur. Það hafi því virst sem að spáin væri að ganga eftir.

„Björgunarsveitirnar hafa verið kallaðar út um 120 sinnum það sem af er morgni. Svo megum við reikna með að bætist eitthvað við seinni partinn þegar veðrið gengur yfir Norðurlandið og Austurlandið,“ sagði Davíð þegar fréttastofa náði tali af honum í samhæfingarmiðstöð almannavarna í morgun.

Davíð segir að ekki hafi verið mikið um stór verkefni. „Þetta voru þessi klassísku verkefni í svona veðrum. Það var fok á lausamunum, það var óvenjulega mikið um útköll sem sneru að því að hurðir og gluggar voru að fjúka upp. Sáum eitthvað svoleiðis. En þetta voru fok á lausamunum, klæðningu, garðhúsum, grindverum og þess háttar.“

Davíð segir að undirbúningurinn hafi verið mjög mikill svo það hafi ekki tekið langan tíma að kalla út björgunarsveitir. Heilt yfir hafi þetta mögulega verið eitthvað minna en maður hefði ímyndað sér. 

„En eins og veðurfræðingarnir segja þá var úrkoman eitthvað minni en spár gerðu ráð fyrir. Ég get samt ímyndað mér að ef fólk hefði verið á ferðinni þá hefðu útköll björgunarsveita verið töluvert fleiri.“

Hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum að neðan.


Tengdar fréttir

Veður­vaktin á Vísi: Byrjað að lægja í höfuð­borgar­svæðinu

Fárviðrið sem nú gengur yfir landið á að fara að slota á höfuðborgarsvæðinu og Suðvesturlandi en rauð viðvörun sem gefin var út fyrir svæðið í gær er í gildi til klukkan átta. Færð á höfuðborgarsvæðinu er betri en menn höfðu leyft sér að vona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×