Fótbolti

Jón Þór hættur hjá Vestra | Að taka við ÍA

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Jón Þór Hauksson.
Jón Þór Hauksson. Facebook/@Vestri.Knattspyrna

Jón Þór Hauksson er hættur þjálfun Lengjudeildarliðs Vestra og er að taka við úrvalsdeildarliði ÍA.

Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Vestra nú rétt í þessu.

Jón Þór mun taka við liði Skagamanna af Jóhannesi Karli Guðjónssyni sem réði sig nýverið sem aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands.

Jón Þór þekkir vel til á Akranesi þar sem hann ólst upp og steig sín fyrstu skref í þjálfun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×