Atvinnulíf

Aðrir en Kauphallarforstjórinn sjálfur sem spá í Facebooksíðu fyrir hann

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland, er einn fárra Íslendinga sem ekki er á Facebook. Sem honum finnst dásamtlegt, enda áreiti alveg nógu mikið og gaman að hitta fólk í raunheimum. Magnús skipuleggur sig á sama hátt og svo margir: Hann skrifar niður verkefnalista.
Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland, er einn fárra Íslendinga sem ekki er á Facebook. Sem honum finnst dásamtlegt, enda áreiti alveg nógu mikið og gaman að hitta fólk í raunheimum. Magnús skipuleggur sig á sama hátt og svo margir: Hann skrifar niður verkefnalista. Vísir/Vilhelm

Magnús Harðarson byrjar daginn á því að skanna fréttir netmiðla með „Kauphallargleraugunum,“ enda forstjóri Nasdaq Iceland en einnig einn fárra Íslendinga sem er ekki á Facebook.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Venjulega korter í sjö til sjö en ef ég er í hlaupagírnum, sem ég er ekki þessa dagana, þá vakna ég að minnsta kosti klukkutíma fyrr. Það er nauðsynlegt að ná hlaupunum inn í upphafi dags, annars er eins víst að ekkert verði af þeim.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Það fyrsta sem ég geri er að renna snöggt yfir fréttir dagsins á netmiðlunum. Skoða þær með „Kauphallargleraugunum“, hvort að það er eitthvað að gerast sem við í Kauphöllinni gætum þurft að bregðast við. 

Léttar líkamsæfingar á baðgólfinu taka svo við. Þegar sólargangur er langur byrja ég stundum daginn á morgungöngu, nú eða hlaupum ef ég er í þeim gírnum. Mér finnst indælt að viðra mig og stilla mig af í upphafi dags. Ég kem þá vel stemmdur inn í daginn.“

Hefur þú hugleitt að byrja á Facebook?

Ég held að það séu fyrst og fremst aðrir sem hafa hugleitt það fyrir mig, án undantekningar af góðum hug. Í þessari veröld upplýsingaofgnóttar finnst mér bara svo dásamlegt að vera ekki á Facebook. Það sem vakir fyrir mér er að minnka áreiti. Áreitið í dagsins önn er svo mikið að ég leitast við að minnka það frekar en auka.

Vissulega missir maður stundum af einu og öðru og kemur öðru hverju af fjöllum, en það gerir oftast ekkert til. Ef mikið liggur við þá hefur fólk samband eftir öðrum leiðum. Allra skemmtilegast finnst mér að fá fréttir af fólki þegar maður hittir það í raunheimum.“

Magnús vaknar snemma og byrjar þá á því að skanna netmiðlana með „Kauphallargleraugunum“ til að sjá hvort bregðast þurfi við einhverjum fréttum. Magnús tekur léttar líkamsæfingar á baðgólfinu en viðrar sig í morgungöngu eða með hlaupi þegar veðrið er gott.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Verkefnin á borðinu eru allmörg en líkast til þau mikilvægustu og skemmtilegustu lúta að nýskráningum og að breikka vöruúrvalið hjá okkur í Kauphöllinni.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

Í lok dags skrifa ég verkefnalista sem ég vinn eftir næsta dag. Ég er líka með lista yfir forgangsverkefni sem nær til lengri tíma, næstu viku og vikna. 

Umhverfið sem ég vinn í er mjög kvikt og oft koma upp áríðandi mál sem riðla aðeins skipulaginu en listarnir hjálpa mér að halda mínu striki.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Það er svolítið breytilegt en oftast í kringum hálf tólf.“


Tengdar fréttir

„Ef ADHD-ið mitt væri próf í skóla væri ég með níu í einkunn“

Séra Hildur Eir Bolladóttir er prestur og skáld en segist þó fyrst og fremst vera mamma. Hún segist vel skilja að fólk sé orðið þreytt á Covid og takmörkunum en bendir á að í öllum erfiðum aðstæðum í lífinu, er líka hægt að hafa gaman. Hildur segist vakna á morgnana við hláturinn í Gulla Helga og Heimi Karls.

„Nýlega sett mér það markmið að vera meiri pæja“

Þóranna Kristín Jónsdóttir, var ráðinn leiðtogi markaðsmála hjá BYKO í nóvember síðastliðnum en hún setti sér nýlega það markmið að vera meiri pæja. Þóranna er líka að æfa sig í að vera aðeins rólegri en í skipulagi er hún algjörlega „lista-sjúk.“

„Gæðastundirnar eru svo miklu fleiri“

Fyrr á þessu ári hætti Jóhann K. Jóhannsson í fréttamennsku, réði sig sem slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð og fluttist með fjölskyldunni til Siglufjarðar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×