Atvinnulíf

„Gæðastundirnar eru svo miklu fleiri“

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Jóhann K. Jóhannsson fyrrum fréttamaður á Stöð 2 söðlaði heldur betur um á árinu sem er að líða, því þá réði hann sig sem slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar og fluttist með fjölskyldunni til Siglufjarðar. Hann segir lífið fyrir norðan einstaklega ljúft. Fleiri gæðastundir með fjölskyldunni og umhverfið svo fallegt að alla daga upplifir hann það eins og fallegt málverk að horfa á út um gluggann. 
Jóhann K. Jóhannsson fyrrum fréttamaður á Stöð 2 söðlaði heldur betur um á árinu sem er að líða, því þá réði hann sig sem slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar og fluttist með fjölskyldunni til Siglufjarðar. Hann segir lífið fyrir norðan einstaklega ljúft. Fleiri gæðastundir með fjölskyldunni og umhverfið svo fallegt að alla daga upplifir hann það eins og fallegt málverk að horfa á út um gluggann.  Vísir/Vilhelm

Fyrr á þessu ári hætti Jóhann K. Jóhannsson í fréttamennsku, réði sig sem slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð og fluttist með fjölskyldunni til Siglufjarðar.

Jóhann mælir með því að fólk prófi að búa úti á landi. Hann segir rekstrarkostnaðinn lægri fyrir heimilið á Siglufirði í samanburði við höfuðborgarsvæðið og gæðastundirnar mun fleiri. Jóhann hvetur fólk til að huga að eldvörnum yfir hátíðirnar.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Klukkan er alltaf stillt á 07:25. Konan mín hefur barist fyrir því að ég sleppi því um helgar. Ég get ekki sagt að ég sé sá fyrsti á fætur þegar klukkan hringir.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Það er yfirleitt þannig að fjölskyldan er að mæta í vinnu og skóla á sama tíma þannig að það er að koma yngsta syninum í föt og svo förum við öll saman af stað út í daginn. Fyrsti morgunkaffibollinn er yfirleitt ekki tekinn fyrr en maður hittir vinnufélaga og samstarfsmenn.“

Að fara úr fréttamennsku, flytja út á land og koma sér fyrir á Siglufirði: Hvernig myndir þú lýsa því að flytja úr borginni og út á land?

„Það var mikil breyting að færa sig úr borginni og út á land. Það var hins vegar lítið sem kom okkur hjónunum á óvart því við höfum gert þetta áður. Það er ofboðslega gott að komast aðeins út úr hraðanum í borginni og gera eitthvað nýtt.

Það eru mikil lífsgæði sem fylgja því að búa á landsbyggðinni. Gæðastundirnar eru svo miklu fleiri. Það kemur til vegna þess að fjarlægðir innanbæjar eru svo miklu minni heldur en í borginni. Það er stutt heim úr vinnunni, það er stutt í leikskólann og það er stutt í búðina og svo framvegis. 

Í Reykjavík er umferðinn orðin svo þung öllu jafna og mikill tími sem fer í að ferðast á milli staða. Með því að hafa flutt út á land erum við búin að umbreyta þessum tíma í gæðastundir.

Við sjáum líka mun í veskinu. Til að mynda er húsnæðiskostnaður er lægri og það skilar sér. Ég hvet alla sem eru að pæla að bara prófa að búa á landsbyggðinni.

Staðsetningin sem við fjölskyldan völdum okkur er einstök. Fjallabyggð er ótrúlega fallegur staður. Þar höfum við Ólafsfjörð, Héðinsfjörð og Siglufjörð og hver fjörður hefur sína einstöku ásýnd. Samfélagið tók ótrúlega vel á móti okkur og við fjölskyldan erum búin að koma okkur fyrir á Siglufirði. Við erum umvafin einum fegursta fjallasal í heimi, „Siglfirsku ölpunum“ og maður er með nýtt málverk fyrir utan gluggann hjá sér á hverjum einasta degi. Jafnvel oft á dag.

Það merkilega við það að hafa flutt úr borginni og norður er að við höfum, ef eitthvað er, hitt fólkið okkar, meira frá því við komum hingað. Það er að segja stundirnar eru lengri og skemmtilegri. Fjölskyldan og vinir hafa frá því í sumar verið dugleg að koma til okkar.“

Jóhann segir mikinn mun á því að búa á höfuðborgarsvæðinu eða úti á landi og mælir með því að fólk prófi að flytjast á landsbyggðina. Þessa dagana er mikið að gera hjá slökkviliðsstjóranum enda verið að brýna fyrir fólki að huga að eldvörnum yfir hátíðirnar. Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Síðustu mánuði og vikur frá því ég tók við starfi slökkviliðsstjóra í Fjallabyggð hafa verkefnin snúið að endurskipulagningu og stefnumótun. Það hefur gengið vel. Þetta er ábyrgðarmikið og mikilvægt starf, að halda úti virku slökkviliði og vinna að eldvarnareftirliti í sveitarfélaginu. Líkt og annarsstaðar hefur Covid-19 haft mikil áhrif á starfið og starfsemina eins og maður á að venjast.

Síðustu dagar hafa farið í forvarnarstarf; Jólin eru fram undan og eldvarnir heimilisins eru ofarlega á baugi. 

Það er að gera fólki grein fyrir þeim hættum sem eru á heimilum en þar hefur eldhætta breyst og aukist á fáum árum með tilkomu til dæmis fleiri rafmagnstækja. 

Nú hvetjum við fólk til þess að hafa reykskynjara í hverju rými á heimili ekki bara í eldhúsi, stofu og þvottahúsi. 

Slökkvitæki við útganga og flóttaleiðir og eldvarnarteppi í eldhúsinu. 

Í desember heimsótti slökkviliðið þriðja bekk grunnskólans í Fjallabyggð og kynnti fyrir börnunum eldvarnir heimilisins. Börnin hafa svo farið heim með skilaboðin og haldið foreldrum sínum við efnið um hvað þurfi að vera í lagi fyrir jólin. Þetta forvarnarstarf er unnið í góðri samvinnu við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Brunabótafélag Íslands og aðra slökkviliðsstjóra í landinu.

Forvarnarstarfið breytist svo á milli jóla og nýárs. Þá snúum við okkur að því að hvetja til varkárni og aðgæslu í kringum flugelda og brennur.

Upplýsingamiðlun er einn mikilvægasti þátturinn í þessu starfi sem öðrum. Með því að halda úti virkri upplýsingamiðlun, eins og í okkar starfi, eykur þú öryggistilfinningu íbúa og gesta í sveitarfélaginu.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég er mjög skipulagður að eðlisfari. Hugsa alla hluti í lausnum. Ég held dagbók um verkefnin og þannig næ ég yfirsýn yfir það sem ég er að gera og þarf að gera. 

Starf slökkviliðsstjóra í hlutastarfandi liði er margþætt. Undirbúningur fyrir að slökkvilið sé tilbúið í útkall hvar og hvenær sem er, skipulag og undirbúningur fyrir og vegna æfinga slökkviliðsmanna. Umsjón með öllum tækjabúnaði og að hann sé klár í öll verkefni. Það er eldvarnareftirlit í fyrirtæki og stofnanir og slökkvitækjaþjónusta. Samskipti við íbúa, stjórnsýsluna og pólitíkina. Þetta er svona brot af því sem felst í starfinu.„

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? 

„Alltof seint að allra mati. Hins vegar finnst mér tíminn þegar liðið er á kvöldið oft góður til þess að setjast niður og njóta þess að vera til. Hvort sem það sé á spjalli við eiginkonuna, horfa á góða mynd eða vinna í tölvunni.“


Tengdar fréttir

Áskorun að kaupa alltaf tvær gjafir fyrir frúna í desember

Það er í nægu að snúast hjá Almari Guðmundssyni framkvæmdastjóra Reiknistofu lífeyrissjóða (RL) og bæjarfulltrúa í Garðabæ. Enda eru þau sjö á heimili, margt að gerast í vinnunni og til viðbótar við jólin á frúin líka afmæli í desember.

Ekkert elsku mamma þegar snjóar í Bláfjöllum

Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans vaknar snemma, kúrir þó lengur um helgar nema þegar snjóar vel í Bláfjöllum. Lilja á enn öll jólakort með myndum sem hún hefur fengið en árlegt jólakraftaverk í vinnunni er að klára þriggja ára áætlun fyrir bankann.

Svefnvenjurnar að vetri eins og opnunartími í Kringlunni

Hera Björk Þórhallsdóttir tónlistarkona og löggiltur fasteignasali segist líka vera almennur „græjari og gerari.“ Til að skipuleggja ólíku verkefnin sín gefur hún þeim heiti í TRELLO eins og FasteignaHera og Ilmur af jólum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×