Húsfélag fær 36 milljónir vegna galla Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 20. desember 2021 11:10 Lundur 2-6 í Kópavogi, deilan snerist um frágang á þakplötu á bílastæðahúsi sem sjá má á myndinni. Já.is Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hefur verið dæmt til að greiða húsfélaginu Lundi 2-6 í Kópavogi 36 milljónir vegna galla í þakplötu á bílastæðahúsi sem fylgdi íbúðum í húsunum.
Deilan snerist aðallega um frágang á þakplötu á sameiginlegri bílastæðageymslu sem fylgdi íbúðunum í Lundi 2-6, fjöleignarhúsi í þremur stigahúsum með 59 íbúðum. Íbúðirnar voru afhentar á árinum 2014 til 2015. Þremur árum síðar gerði húsfélagið athugasemdir við ýmiskonar frágang, þar á meðal að frágangur yfirborðs bílaplans væri ekki í samræmi við samþykkta verklýsingu, teikningar og eignaskiptayfirlýsingu. Loftplötur í bílakjallara sýndu merki um rakaskemmdir frá lekri þakplötu og að regnvatn og snjóbráð rynnu af gangstéttum út á bílaplanið sem ylli hálkumyndun í frosti. Matsmenn töldu frágang ekki forsvaranlegan miðað við aðstæður Byggingarfélagið hafnaði því að frágangi á þakplötu og gangstéttum væri ábótavant. Gerðar voru nokkrar lagfæringar á þakplötunni vegna leka sem Byggingarfélagið taldi vera til komna vegna borunar við niðurlögn á kantsteinum. Dómkvaddir matsmenn voru kallaðir til í deilunni og komust þeir að þeirri niðurstöðu að skil Bygginarfélagsins á plötunni hafi ekki verið í samræmi við samþykktar teikningar, frágangur hafi hvorki verið í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar né forsvaranlegur miðað við aðstæður. Dómur í málinu féll í Héraðsdómi Reykjaness.Vísir/VIlhelm Þá væri útfærsla á gangstéttum við bílaplan hvorki forsvaranleg né uppfyllti hún ákvæði í byggingarreglugerð. Var það niðurstaða matsmanna að heildarkostnaður við úrbætur þeirra atriða sem lagt var fyrir matsmenn að meta væri 42,25 milljónir króna. Reynt var að ná sáttum í málinu, án árangurs og höfðaði því húsfélagið mál á hendur Byggingarfélaginu. Byggði húsfélagið meðal annars á því að Byggingafélagið væri tryggt fyrir annmörkum sem komi í ljós innan fimm ára frá lokaúttekt bygginganna, sem í þessu tilviki fór fram árið 2015. Fóru í vettvangsferð Í dómi Héraðsdóms Reykjaness kemur fram að aðilar málsins hafi farið í vettvangsferð í bílastæðahúsið ásamt dómurum málsins til þess að kanna aðstæður. Þar kemur einnig fram að Byggingafélaginu hafi ekki tekist að hnekkja því mati dómkvaddra matsmanna að frágangur á þakplötunni hafi ekki verið í samræmi við byggingarlýsingu. Var það mat þeirra að eina leiðin til að bæta úr lekanum sem deilt var um bæri sú að klæða plötuna með brúarpappír og malbika yfir, eins og upphafleg hönnun gerði ráð fyrir. Var fallist á það með matsmönnum að kostnaður við þær úrbætur næmi 39,8 milljónum, en 35,8 milljónir að frádregnum 100 prósent endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu á verkstað. Þó var krafa húsfélagsins vegna galla á gangstéttum talin fyrnd. Var Byggingarfélagið því dæmt til að greiða húsfélaginu 35,8 milljónir, auk tæpra fimm milljóna króna í málskostnað.
Dómsmál Húsnæðismál Neytendur Mest lesið Engar viðræður fyrr en Trump fellir niður tolla Viðskipti erlent Minni sala í skugga slæmra efnahagshorfa Viðskipti erlent Segja afkomuna ásættanlega þrátt fyrir tap Viðskipti innlent „Þetta er ömurleg staða“ Viðskipti innlent Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Neytendur Sekta TikTok um tæpa áttatíu milljarða Viðskipti erlent Syndis kaupir Ísskóga Viðskipti innlent Fokdýr jólagjöf til dætranna reyndist eintóm blekking Neytendur Mikill samdráttur á pöntunum til kínverskra verksmiðja Viðskipti erlent Þau vilja stýra ÁTVR Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Fokdýr jólagjöf til dætranna reyndist eintóm blekking Bensínverð rjúki upp en fari hægt niður Hvar er opið um páskana? Spotify liggur niðri Ósáttur við aukna gjaldtöku við flugvöllinn fyrir leigubílstjóra Hækka verð á PS5 í Evrópu vegna „krefjandi“ umhverfis Reiknivél sem sýnir áhrif breytingar á samsköttun Danskir seðlar teknir úr umferð og verða ógildir Hafi ógnað öryggi flugsins en fær samt bætur Páskaegg allt að fjórðungi dýrari en í fyrra Tvö apótek sögðu pass við verðlagseftirlitið Kannast ekki við hafa tekið lán að nóttu til en þarf að borga Rangt að plástrarnir geti læknað sjúkleika eða röskun á líffærastarfsemi Hatar sjálfsafgreiðslukassa: „Ég er orðinn gamall karl að gefast upp á nútímanum“ Sjá meira