Fótbolti

Karólína og Glódís spiluðu þegar Bayern tyllti sér á toppinn

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir
Glódís Perla Viggósdóttir vísir/Getty

Glódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru í eldlínunni með þýska stórveldinu Bayern Munchen í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Glódís Perla hóf leik í hjarta varnarinnar hjá Bayern sem var í heimsókn hjá Werder Bremen. 

Maxi Rall kom Bayern í forystu á níundu mínútu og var staðan enn 0-1 þegar Karólína Lea kom inn af varamannabekknum hjá Bayern á 64.mínútu.

Bayern tvöfaldaði forystuna í uppbótartíma venjulegs leiktíma þegar hin japanska Saki Kumagai skoraði og gulltryggði Bayern 0-2 sigur.

Með sigrinum varð það ljóst að Bayern verður á toppnum yfir jólahátíðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×