Erlent

Föst á þaki há­hýsis í Hong Kong vegna elds

Atli Ísleifsson skrifar
Eldurinn kom upp í World Trade Centre í Hong Kong þar sem unnið hefur verið að viðgerðum á klæðningu.
Eldurinn kom upp í World Trade Centre í Hong Kong þar sem unnið hefur verið að viðgerðum á klæðningu. AP

Rúmlega hundrað manns eru nú fastir á þaki stórhýsis í Hong Kong eftir að eldur upp í húsinu um hádegisbil að staðartíma í dag. Húsið sem um ræðir er þrjátíu og átta hæðir.

Byggingin heitir Hong Kong World Trade Centre og hefur að undanfarið verið unnið að viðgerðum á klæðningu byggingarinnar. Öllum verslunum í húsinu hafði verið lokað tímabundið vegna viðgerðanna og hefur því starfsemi verið á fáum hæðum í húsinu síðustu misserin.

BBC segir frá því að eldurinn hafi komið upp í tækjaherbergi í húsinu en svo læst sig í stillönsum utan á húsinu.

Átta eru slasaðir svo vitað sé og manntjón virðist ekki hafa orðið. Hin slösuðu eru sögð vera á aldrinum 31 til 72 ára.

Björgunarsveitir reyna nú að komast að fólkinu sem er fast á þaki hússins. Þegar er búið að bjarga 150 manns úr húsinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×