Tekjuhæstu þjóð veraldar haldið frá góðærinu með fölsun a verðgildi krónunnar Ólafur Örn Jónsson skrifar 15. desember 2021 10:31 Með alfarið fordæmalausum hætti sem aldrei hefur átt sér stað í islenskri efnahagsstjórnun áður notar fjármálaráðherra Seðlabankann til að kaupa upp gjaldeyri og koma þannig í veg fyrir eðlilega hækkun á gengi krónunnar eftir hrunið sem útgerðin olli. Þessi skollaleikur sem staðið hefur frá 2014 hefur nú kostað launafólk og lífeyrisþega 35 til 40% kaupmáttarskerðingu á sama tíma og útgerðin dregur til sín 50% óáunnar tekjur og útgerðarmenn sem í hruninu sátu uppi með 650 milljarða kvótaskuldir þvo nú illa fenginn stolinn óðagróða sinn með því að kaupa upp nánast allt atvinnulíf landsins. Já við erum að lifa það að með skipulagðri starfsemi eru stórútgerðirnar að nota sín pólitísku völd og spillingu til að taka risa margra tuga milljarða snúning á þjóðinni ósmurðri. Með þessu lága gengi af manna völdum búum við við vaxandi verðbólgu sem komin er út fyrir öll mörk. Laun og lífeyrisþegar búa við 35 til 40% skertan kaupmátt. Heilbrigðiskerfið er í molum vegna fjárskorts og hjúkrunarfræðingar og lögreglumenn eru launalega sveltir í þeirri viðleitni fjármálaráðherra að koma í veg fyrir að þessir nauðsynlegu en dýru innviðir ásamt eldriborgurum ÍÞYNGI ATVINNULÍFINU. Hvað lesum við út úr því? Við sitjum uppi með viðbjóðslegustu svikamyllu sem nokkur vestræn þjóð hefur mátt horfa uppá af hendi spilltra stjórmálamanna og rotins atvinnulífs SA. Hér eru útgerðamenn að nota sín sterku pólitísku tengsl til að stjórna gengi krónunnar sér í hag á kostnað afkomu almennings og samfélagsins sem engist í fádæma fjársvelti þrátt fyrir ríkidæmi þjóðarinnar. Sannarlega verið að koma í veg fyrir að þjóðin njóti góðærisins sem gífurlegar hækkanir á heimsmarkaðsverði hafa fært okkur og aukinn túrismi. Útgerðarmenn og leppar þeirra þreytast ekki á að halda því fram að það sé þeirra „einstaka færni“ (lygi sem hófst 1990) sem skapað hafa hækkanirnar á heimsmarkaði sem er hrein lygi því staðreyndin er að einokun kvótakerfisins hefur stór skert það dýmætast sem við áttum markaðshlutdeildina sem komin er í hendur Noðmanna sem eru fararbroddi á öllum þorskmörkuðum þar sem fólk þekkir nú norskan fisk en veit ekkert um íslenskan fisk. Svona er lygin notuð til að blekkja og svíkja og verja einokun og fákeppni. Við sem þjóð megum ekki sætta okkur við svona viðbjóðslega og fordæmalausa græðgi sem varin er með pólitískri spillingu sem á sér hvergi fordæmi í upplýstum heimi enda ekkert þjóðþing veraldar jafn rotið og það íslenska þar sem hagsmunaöflin í þjóðfélaginu eiga stóran meirihluta á þinginu og ráða ríkisstjórnum. Staðreyndin sem við horfum á í dag er sú að gengi krónunnar sem á að fljóta er alfarið handstýrt í þágu útgerðarinnar sem eru að komast upp með að halda genginu í hrunástandi Evran 150 kr með þeim erfiðu aðstæðum sem við sjáum á meðan verð á Evrunni ætti að vera 80 til 90 krónur með minnst 40% hærri kaupmætti launa og lífeyris og sambærilegri styrkingu ríkissjóðs og þar með styrkingu innviða. Við erum í dag vesæl þjóð sem situr uppi með risa spillingu og sora í stjórmálum og í efnahagslífinu þar sem græðgin ræður ríkjum og spillt stjórkerfi fiskveiðanna hefur skapað hirð fólks sem í stað þess að þakka fyrir sín óáunnu forréttindi gerir allt til að arðræna samfélagið sem elur þau inn að beini. Þið fyrirgefið mér hvað sannleikurinn er sár en hann er fyrir löngu orðin okkur allt of dýr. Ég varaði við nákvæmlega þessu ástandi í blaðagrein í Mogganum 1995 og missti reyndar vinnuna en sannleikann má ekki þagga niður. Nú er það okkar verk að taka landið okkar og ríkidæmi til baka úr höndum þjófa og lærum af þessu að maður kastar ekki perlum fyrir svín. Höfundur er heldriborgari og fv skipstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Örn Jónsson Mest lesið Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar