Innlent

Einkaaðilar hafa fengið 240 milljónir króna greiddar fyrir hraðprófin

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Heildarkostnaður Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna allra sýnataka fyrstu tíu mánuði ársins er 460 milljónir króna.
Heildarkostnaður Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna allra sýnataka fyrstu tíu mánuði ársins er 460 milljónir króna. Vísir/Vilhelm

Þeir einkaaðilar sem séð hafa um hraðprófin vegna kórónuveirunnar höfðu fram til 1. desember fengið um 240 milljónir greiddar fyrir þjónustuna.

Þetta kemur fram í svari frá Sjúkratryggingum Íslands við fyrirspurn Fréttablaðsins

Fjallað er um málið í blaðinu í dag og rifjað upp að Svandís Svavarsdóttir, þáverandi heilbrigðisráðherra, hafi í september sett reglugerð um að Sjúkratryggingar greiddu fyrir töku hraðprófa hjá einkaaðilum frá 20. september. 

Markmiðið hafi verið að auka aðgengi almennings að hraðprófum. 

Milljónirnar 240 sem greiddar hafa verið út nú þegar komu því á tíu vikna tímabili. 

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins annast einnig sýnatökur, meðal annars með hraðprófum og segir Óskar Reykdalsson forstjóri að kostnaður stofnunarinnar í heild, við allar sýnatökur á flugvelli og á Suðurlandsbraut, sé 460 milljónir króna á fyrstu tíu mánuðum ársins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×