Viðskipti innlent

Orku­veitan hagnaðist um ellefu milljarða

Eiður Þór Árnason skrifar
Bjarni Bjarnason, forstjóri OR.
Bjarni Bjarnason, forstjóri OR.

Samstæða Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hagnaðist um 10,9 milljarða á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagnaður nam 744 milljónum króna á sama tímabili í fyrra. 10,6 milljarða króna sveifla var í verðmæti langtíma raforkusölusamninga OR á tímabilinu vegna hækkunar álverðs.

Árshlutareikningur OR samstæðunnar fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2021 var samþykktur af stjórn OR í dag. Auk móðurfélagsins eru innan samstæðunnar Veitur, Orka náttúrunnar, Ljósleiðarinn og Carbfix. Samstæðan hagnaðist um 2,1 milljarð króna á síðasta ársfjórðungi.

Heildarafkoma samstæðunnar á tímabilinu 1. janúar til 30. september 2021 nam 12,2 milljörðum króna en var 8,1 milljarður á sama tímabili árið 2020.

Þróun álverðs haft mikil áhrif á reiknaða afkomu

Þar sem hluti raforkusölu OR er tengdur álverði kom lækkað mat á verðmæti slíkra raforkusamningasamninga niður á reiknaðri afkomu OR á árinu 2020 þegar álverð tók dýfu við upphaf kórónuveirufaraldursins. Á yfirstandandi ári hefur álverð hins vegar hækkað talsvert og mat OR á verðmæti samninganna breyst í samræmi við það.

Eftir fyrstu níu mánuði ársins 2020 var verðmæti þessara langtímasamninga tengdra álverði metið hafa lækkað um 2,75 milljarða en í rekstrarreikningi yfirstandandi árs er það talið hafa vaxið um 7,86 milljarða króna. Sveiflan milli ára í þessari reiknuðu stærð uppgjörsins nemur því liðlega 10,6 milljörðum króna.

Vöxtur í tekjum allra starfsþátta

Fram kemur í tilkynningu frá OR að rekstrarkostnaður hafi lækkað um rúm 6% milli ára og hagstæðar ytri aðstæður á borð við hærra álverð og lægri vextir skili sér í bættri afkomu.

Tekjur allra starfsþátta vaxa milli ára og rekstrarhagnaður (EBIT) nemur 14,4 milljörðum króna en var 11,2 milljarða fyrstu níu mánuðina 2020.

Handbært fé frá rekstri OR og dótturfélaganna nam 21,8 milljörðum króna fyrstu níu mánuði ársins en var 19,4 milljarðar á sama tímabili 2020.

Útgjöld vegna raforkukaupa og flutnings rafmagns lækka lítillega á milli ára og sömuleiðis launakostnaður en annar rekstrarkostnaður dregst saman um tæpan fimmtung.

Vatnsgjald helst óbreytt

„Ef við lítum fram hjá reiknuðum stærðum í uppgjörinu þá væri rekstrarafkoman jákvæð um sex milljarða króna. Það er eðlilegur afrakstur af því fé sem eigendur hafa bundið í starfseminni,“ segir Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, í tilkynningu.

„Vegna þessa árangurs í rekstrinum getum við haldið áfram að bjóða þjónustuna á tiltölulega lágu verði. Nýlega lækkuðu tengigjöld Veitna og nú liggur fyrir að raunlækkun verður á kalda vatninu með því að vatnsgjald heimila verður óbreytt á næsta ári. Um leið leyfir traust fjárhagsstaða okkur að tryggja gæði þjónustunnar, þróun og uppbyggingu.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×