Sævar Þór Jónsson, lögmaður Hugarafls, sendi á dögunum bréf til annarra félagasamtaka þar sem hann fullyrti að ráðuneytið ætlaði ekki að rannsaka ásakanirnar. Hann segir í samtali við fréttastofu að félagsmálaráðuneytið sé tvísaga í málinu og að fyrri yfirlýsingar hans hafi byggt á svari ráðuneytisins.
„Það er mjög bagalegt að ráðuneytið skuli gefa út þessa yfirlýsingu þegar það og lögfræðingur ráðuneytisins er búið að vera í samskiptum við okkur og lýsa því yfir að það sé ekkert stjórnsýslumál í gangi,“ segir Sævar.

Segja einelti hafa þrifist innan samtakanna
Sex fyrrverandi félagsmenn Hugarafls sendu í ágúst greinargerðir á ráðuneytið vegna starfs- og stjórnunarhátta samtakanna. Hugarafl eru félagasamtök fólks sem hefur upplifað persónulega krísu og vinnur að bata sínum.
Fyrrverandi félagsmenn segja framkomu stjórnenda hafa verið eitraða og að hún hafi meðal annars lýst sér í einelti og ógnarstjórnun gegn almennum félagsmönnum. Forsvarsmenn Hugarafls hafa frá upphafi hafnað ásökununum.
Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra sagði í september að til skoðunar væri hvort og þá til hvaða ráðstafana yrði gripið vegna athugasemdanna.
Í svari sem barst frá félagsmálaráðuneytinu í dag segir að það hafi í þrígang fundað með fyrrum félagsmönnum Hugarafls sem afhentu ráðuneytinu greinagerðirnar. Fleiri félagsmenn Hugarafls, bæði núverandi og fyrrverandi, hafi í kjölfarið sett sig í samband við ráðuneytið og lýst upplifun sinni af Hugarafli.
Fram kemur í svari ráðuneytisins að sömuleiðis liggi fyrir upplýsingar sem tengist þjónustusamningi Vinnumálastofnunar við Hugarafl.
Vilja óháða úttekt
Stjórnendur Hugarafls hafa óskað eftir því að félagsmálaráðuneytið láti gera óháða úttekt á starfsemi félagasamtakanna. Að sögn ráðuneytisins hefur það ekki rætt við stjórnendur Hugarafls með hliðsjón af fyrirliggjandi ábendingum á meðan ósk samtakanna um óháða úttekt er til skoðunar.
Hafa verið teknar ákvarðanir um hvernig skal bregðast við þessum ábendingum sem ráðuneytið sagðist vera með til skoðunar og tæki alvarlega?
„Þar sem málið er enn í skoðun hjá félagsmálaráðuneytinu er of snemmt að segja hvað gert verður við þær upplýsingar sem koma úr þeirri vinnu, annað en það að niðurstöðurnar verða teknar alvarlega og þær nýttar til þess að meta hvaða aðgerða, ef einhverra, þarf að grípa til í framhaldinu,“ segir í skriflegu svari félagsmálaráðuneytisins.
Lagt fram kæru
Sævar Þór Jónsson, lögmaður Hugarafls, sagði í síðustu viku að félagið hafi lagt fram kæru hjá lögreglu vegna alvarlegra hótana í garð starfsfólks og stjórnarmanna Hugarafls.
Félagsmálaráðuneytið styrkti Hugarafl um átta milljónir króna í lok síðasta árs. Sá styrkur snýr að rekstri opins úrræðis þetta ár og það næsta.
Stefán Þór Stefánsson tjáði sig um reynslu sína af starfsemi Hugarafls í Íslandi í dag í september. Hann kynntist Hugarafli árið 2015, varð virkur í starfsemi og kynnist unnustu sinni sem svipti sig lífi fyrr á árinu. Unnustan, Tinna Finnsdóttir, hafði verið skjólstæðingur Hugarafls og er að sögn Stefáns ein þeirra sem hlaut mjög ómaklega meðferð af hálfu stjórnenda samtakanna.
Horfa má á viðtalið við Stefán í spilaranum hér fyrir neðan.
Fréttin hefur verið uppfærð.