Makamál

Töluverður áhugi á því að opna ástarsambandið

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Makamál spurðu lesendur Vísis hvort að þeir hefðu íhugað að opna ástarsambandið. Yfir þrjúþúsund manns svöruðu könnuninni. 
Makamál spurðu lesendur Vísis hvort að þeir hefðu íhugað að opna ástarsambandið. Yfir þrjúþúsund manns svöruðu könnuninni.  Getty

Bara ég og þú. Jú, og einhverjir fleiri...!Eru opin sambönd að verða algengari í íslensku samfélagi? 

Í síðustu viku spurðu Makamál lesendur Vísis hvort að þeir hefðu íhugað það að opna sambandið sitt og tóku yfir þrjú þúsund manns þátt í könnuninni.

Hvað þýðir það að vera í opnu sambandi? 

Þegar talað er um opið samband er átt við þau sambandsform þar sem fólk hefur einhverskonar samkomulag sín á milli varðandi kynlíf eða ástarsamband utan sambandsins.

Það er mjög misjafnt eftir samböndum hvaða leið er farin þegar opna á sambandið en mikilvægt er, þegar kemur að svo stórri ákvörðun, að enginn vafi sé á því að allir séu á sömu blaðsíðu. 

Ef marka má niðurstöðurnar má sjá að rúmlega þriðjungur þeirra sem svöruðu könnuninni segjast hafa íhugað það að opna samband sitt en 7% segjast nú þegar vera í opnu sambandi. 

Makamál munu fjalla ítarlegar um opin sambönd á næstunni en hægt er að sjá nákvæmari niðurstöður úr könnuninni hér fyrir neðan. 


Niðurstöður*

Ég er í opnu sambandi - 7%

Já, ég hef íhugað það alvarlega - 13%

Já, en hef ekki íhugað það alvarlega - 22%

Nei, aldrei - 58%


*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Allar kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×