Makamál

Hefur þú íhugað að opna sambandið?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Hvort sem það eru fjölástarsambönd, swing eða eitthvað annað þá hefur umræðan í samfélaginu um opin sambönd og ólík sambandsform sjaldan verið eins áberandi. 
Hvort sem það eru fjölástarsambönd, swing eða eitthvað annað þá hefur umræðan í samfélaginu um opin sambönd og ólík sambandsform sjaldan verið eins áberandi.  Getty

Vegir ástarinnar og allt það. Er hið hefbundna sambandsform á undanhaldi í nútímasamfélagi? Er hægt að vera í ástarsambandi við fleiri en eina manneskju í einu? 

Fjölástir á Íslandi 

Sambandsformið fjölástir eða polyamore er skilgreining á því þegar fólk á í upplýstum og meðvituðum ástarsamböndum með fleiri en einum aðila í einu. Að vera fjölkær, eða poly eins og það er oft kallað, er lýsing á manneskju sem kýs fjölástarsambönd umfram lokuð sambönd.

Hópur fólks á Íslandi sem kýs sambandsformið fjölástir fer stækkandi og munu Makamál fjalla ítarlegra um þetta sambandsform á næstu dögum.

Ætli fleiri séu að prófa sig áfram með ólík sambandsform? 

Einnig eru til pör sem leyfa kynlíf með aðilum utan sambands eða hjónabands en ekki tilfinningasambönd og eru auðvitað allur gangur á því hvaða reglur pör setja sér þegar kemur að þessum málum og er lykilatriðið að samskiptin séu opin og allt sé uppi á borðum.

Opið samband má því segja að sé hattur yfir þau sambandsform sem hafa einhverskonar samkomulag sín á milli varðandi kynlíf eða ástarsamband við utan sambandsins. 

Spurning vikunnar því er sprottin út frá þeim hugleiðingum hvort að sá hópur sem kjósi að prófa sig áfram utan hins hefðbundna sambandsforms fari stækkandi.   


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×