Þegar valdakarlar iðrast Hildur Lilliendahl skrifar 4. nóvember 2021 08:30 „Við þurfum réttlæti, sanngirni og viðurlög við lögbrotum en líka umræðu, fræðslu og leiðir til að leyfa fólki að bæta ráð sitt, sýni það iðrun og eftirsjá.“ Á þessum orðum forseta Íslands undir dramatískri tónlist Sigur Rósar hófst Kveiksþáttur þessarar viku. Við tók svo það sem mætti kalla 35 mínútna atvinnuauglýsingu þar sem tárvotur Þórir Sæmundsson lýsti því að hann væri í raun ekki vondur maður, hann hefði gerst sekur um þennan dómgreindarbrest þarna einu sinni (að senda stúlkum á grunnskólaaldri mynd af tippinu á sér) en í raun hefði hann bara verið leiddur í gildru. Nú upplifði hann sig útskúfaðan úr samfélaginu og sagði að sakleysi barna sinna hefði verið rænt. Þessi óþægilegi útúrsnúningur á orðum forsetans er eitthvað sem ritstjórn Kveiks verður að eiga við sig en það kom fram í þessu viðtali var eitthvað allt annað en lýsing manns sem sýndi „iðrun og eftirsjá“. Ég get ekki annað en spurt ykkur sem hafið tapað ykkur á Facebook og kaffistofum yfir því að þessar fimmtán ára gálur eigi nú allt illt skilið og þessi gulldrengur hafi gert hreint fyrir sínum dyrum; munið þið eftir þessu? Þegar biskup Íslands mætti í drottningarviðtal hjá RÚV fyrir aldarfjórðungi, hvar stóðuð þið þá og hvernig hefur sagan farið með þá afstöðu sem þið tókuð þá vikuna eða það árið? Reyndar sagðist Þórir Sæmundsson einnig, með sínum eigin orðum í þessu viðtali við Þóru Arnórsdóttur, vera viss um að hafa farið yfir mörk samstarfskvenna sinna þegar hann vann í Borgarleikhúsinu enda hafi hann jú verið í neyslu og konurnar sem hann var að vinna með hafi bæði verið ungar og dansarar. (Og eins og við vitum er 2+2=kynferðisleg áreitni, ég meina, þær voru ungar og DANSANDI.) Aðspurður jánkaði Þórir því að hafa ekki viljað flytja burt vegna þess að í því myndi felast einhverskonar viðurkenning á sekt. Með öðrum orðum; hann vill ekki gangast við sekt. Enda sagði hann sjálfur að samfélagið sem hann býr í sé bara klikkað af því að hann fær ekki vinnu við þjónustu- eða umönnunarstörf. Ekkert af ofangreindu lýsir manni sem sýnir iðrun og eftirsjá. Þetta lýsir manni sem finnst hann eiga heimtingu á því sem honum hentar óháð því hvað kann að leynast í fortíðinni hans. Ekkert okkar veit fyrir víst hversu margir þolendur Þóris Sæmundssonar eru. Miðað við frásögn hans sjálfs er óvíst að hann viti það. En hvísluleikur kvenna á internetinu, síðan viðtalið birtist og reyndar lengi áður, hefur enn og aftur sannað gildi sitt. Nokkrar konur hafa komið fram undir nafni og sagt frá reynslu sinni af honum. Ein segist hafa verið 16 ára, tuttugu árum yngri en hann, hann hafi vitað það og notfært sér aldursmuninn. Önnur segist hafa verið 15 ára þegar hún fékk sendingar frá honum og að hann hafi áreitt hana í nokkur ár. Margar segjast þekkja konur sem hafi „lent í honum“ mjög ungar. Sumar segja frá því að þetta hafi verið alþekkt í ákveðnum hópum, mjög ungum konum hafi verið kennt að forðast hann. Konurnar sem ekki hafa stigið fram opinberlega eru í lokuðum hópum að deila reynslu sinni og sumar þeirra frásagna eru skelfilegri en orð fá lýst. Ég veit persónulega af nokkrum ungum konum sem hágrétu yfir sjónvarpinu í gær í fangi foreldra sinna en geta ekki stigið fram enda koma konur almennt ekki vel út úr slíku. Þóru Arnórsdóttur hefði verið í lófa lagið að leita að þolendum Þóris áður en hún tók við hann 35 mínútna grátandi atvinnuviðtal. Það gerði hún ekki. Í lok þáttarins sagði hún að þegar Kveikur hefði leitað til annarra viðmælenda til að ræða þetta „stóra samfélagsmál“ hefðu viðbrögðin iðulega verið á þá leið að fólk þyrði ekki að taka áhættuna á að „lenda í hakkavélinni“, enda væri umræðan „jarðsprengjusvæði“ og þetta var vitaskuld myndskreytt með hinum þjakaða Þóri að ganga um jarðhitasvæði í náttúru Íslands undir dramatískri tónlist. Þetta segir okkur ekkert annað en það að hún leitaði aðeins til viðmælenda sem hefðu viljað fordæma hina svokölluðu slaufunarmenningu. Það hefur ekki hvarflað að henni að leita til talsfólks þolenda kynbundins ofbeldis, þrátt fyrir að það sé staðreynd að fjöldi kvenna hafi horfið af vinnumarkaði og/eða þurft að flýja land vegna þess að gerendur þeirra voru fyrirferðarmiklir í nærsamfélagi þeirra og engin undankomuleið fyrir þær. Vitanlega hefði fjöldi fagfólks og þolenda getað vitnað um þetta en til þess fólks var ekki leitað. Það hefur reyndar ekki reynst erfitt fyrir annaðfjölmiðlafólk að finna viðmælendur . Þessi Kveiksþáttur olli umtalsverðum skaða. Ekki bara fyrir þolendur viðmælandans (ýmist þá sem minnst var á, eða þau sem ekki var fjallað um) heldur fyrir þolendur kynbundins ofbeldis almennt. Með því að draga fram einn hálfsannleik sem túlkaður er af iðrunarlausum geranda og halda að það varpi einhverju ljósi á hvernig samfélagið tekur á gerendum almennt er alið á þolendaskömm og gerendameðvirkni sem var feykinóg af fyrir. Umfjöllun um úrvinnslu og meðferð mála er mikilvæg og getur leitt til góðs en þessi þáttur gerði ekkert nema auka á átök, sársauka og niðurlægingu þolenda. Bæði þolenda Þóris og annarra þolenda kynbundins ofbeldis. Hugsum okkur aðeins um. Rifjum upp viðtalið við Ólaf Skúlason biskup frá árinu 1996. Þegar þetta nýjasta viðtal verður skoðað í ljósi sögunnar, hvaða afstöðu hefðir þú viljað hafa tekið, svona eftir á að hyggja? Höfundur er kynjafræðinemi og feminískur aktívisti. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Kynferðisofbeldi Fjölmiðlar Mál Þóris Sæmundssonar Mest lesið Daði Már týnir sjálfum sér Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun 140 sinnum líklegra að verða fyrir eldingu Sigurður G. Guðjónsson Skoðun Stöðvum Hamas. Einungis þannig getum við stöðvað hryllinginn á Gaza BIrgir Finnsson Skoðun Traust í húfi Eyjólfur Ármannsson Skoðun Stéttarkerfi Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Verðmætasköpun án virðingar Berglind Harpa Svavarsdóttir Skoðun Æfingin skapar meistarann! Sigurjón Már Fox Gunnarsson Skoðun Enginn á verðinum – um ábyrgð, framtíðarsýn og mikilvægi forvirkrar stjórnsýslu Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025 Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Samhljómur við náttúruna og sjálfbæra þróun Anna María Ágústsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Alvarleg staða í umhverfi fréttamiðla Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Stéttarkerfi Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Stöðvum Hamas. Einungis þannig getum við stöðvað hryllinginn á Gaza BIrgir Finnsson skrifar Skoðun Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025 Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Æfingin skapar meistarann! Sigurjón Már Fox Gunnarsson skrifar Skoðun 140 sinnum líklegra að verða fyrir eldingu Sigurður G. Guðjónsson skrifar Skoðun Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar Skoðun Traust í húfi Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Verðmætasköpun án virðingar Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Daði Már týnir sjálfum sér Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Samhljómur við náttúruna og sjálfbæra þróun Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Aðgerðir gegn mansali í forgangi Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Enginn á verðinum – um ábyrgð, framtíðarsýn og mikilvægi forvirkrar stjórnsýslu Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Framtíðin fær húsnæði Ingunn Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem deyja á Gaza Elín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Brýr, sýkingar og börn Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvað er lýðskóli eiginlega? Margrét Gauja Magnúsdóttir skrifar Skoðun Búum til pláss fyrir framtíðina Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Hættuleg ofnotkun svefnlyfja á Íslandi Drífa Sigfúsdóttir skrifar Skoðun Kveikjum neistann um allt land Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Ætlar Ísland að fara sömu leið og Evrópa í útlendingamálum? Kári Allansson skrifar Skoðun Samtökin 78 verðlauna sögufölsun Böðvar Björnsson skrifar Skoðun Afstaða – á vaktinni í 20 ár Arndís Vilhjálmsdóttir,Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Menntun sem mannréttindi – ekki forréttindi París Anna Bergmann,Sigurður Kári Harðarson skrifar Skoðun Varað við embætti sérstaks saksóknara Gestur Jónsson skrifar Skoðun Út af sporinu en ekki týnd að eilífu María Helena Mazul skrifar Skoðun Meira að segja formaður Viðreisnar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Gaza sveltur til dauða - Tími bréfaskrifta er löngu liðinn Magnús Magnússon,Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Steypuklumpablætið í borginni Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir skrifar Sjá meira
„
Enginn á verðinum – um ábyrgð, framtíðarsýn og mikilvægi forvirkrar stjórnsýslu Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun
Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025 Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025 Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar
Skoðun Enginn á verðinum – um ábyrgð, framtíðarsýn og mikilvægi forvirkrar stjórnsýslu Guðjón Heiðar Pálsson skrifar
Skoðun Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar
Skoðun Menntun sem mannréttindi – ekki forréttindi París Anna Bergmann,Sigurður Kári Harðarson skrifar
Skoðun Gaza sveltur til dauða - Tími bréfaskrifta er löngu liðinn Magnús Magnússon,Hjálmtýr Heiðdal skrifar
Enginn á verðinum – um ábyrgð, framtíðarsýn og mikilvægi forvirkrar stjórnsýslu Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun
Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025 Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun