Viðskipti innlent

„Hryllings­sagna­beiðni“ ASÍ var hvatning um að skipta um stéttar­fé­lag

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Birgir Jónsson og Drífa Snædal halda áfram að elda grátt silfur saman, nú í sjálfu Silfrinu.
Birgir Jónsson og Drífa Snædal halda áfram að elda grátt silfur saman, nú í sjálfu Silfrinu. vísir/vilhelm

Í tölvu­pósti sem Al­þýðu­sam­band Ís­lands (ASÍ) sendi á flug­liða sem starfa hjá flug­fé­laginu Play voru þeir hvattir til að ganga í Flug­freyju­fé­lag Ís­lands (FFÍ) og þeim heitið trúnaði sem vildu hafa sam­band við sam­bandið. „Það er alltaf vel­komið að hafa sam­band við okkur per­sónu­lega, í síma eða tölvu­pósti,“ stóð í lok póstsins. Birgir Jóns­son, for­stjóri Play, hélt því fram í Silfrinu í dag að ASÍ hafi af fyrra bragði sent starfs­mönnum hans tölvu­pósta þar sem væri óskað eftir „hryllings­sögum“.

Þessi fullyrðing hans í Silfrinu varð Drífu tilefni til að birta tölvupóstinn í heild sinni á Facebook-síðu sinni í dag (hann má lesa neðst í fréttinni). Yfirskrift póstsins var: „Ákall um stuðning frá flugliðum Play“

Misjafnar meiningar um hlutleysi stéttarfélags

Deilum ASÍ og Play virðist hvergi nærri lokið en ASÍ hefur sakað flugfélagið um að virða allar stoðir í kjaraumhverfi launafólks á Íslandi að vettugi, með samningum við Íslenska flugstéttarfélagið, sem ASÍ skilgreinir sem „gult stéttarfélag“ með beina tengingu við atvinnurekandann. Lægstu grunnlaun í samningunum séu lægri en grunnatvinnuleysisbætur og hefur ASÍ gengið svo langt að hvetja alla landsmenn til að sniðganga flugfélagið.

Birgir sagði í Silfrinu í dag að gagnrýni ASÍ hafi upprunalega snúist um að Play greiddi starfsfólki sínu „þrælakjör“. Það hafi verið leiðrétt og síðan hafi barátta ASÍ gegn félaginu verið óljós og órökstudd. Hann hefur þvertekið fyrir að Play sé með ítök í Íslenska flugstéttarfélaginu.

Hann sagði þá að ASÍ hefði að fyrra bragði sent flugliðum Play tölvupóst þar sem óskað væri eftir „hryllingssögum“.

Segjast hafa fengið nafnlausar beiðnir um aðstoð

„Eftir að hafa fengið fjölda skilaboða frá flugliðum og flugstjórum þar sem óskað var liðsinnis okkar ákváðum við, ég og formaður Flugfreyjufélagsins að senda póst á flugliða hjá Play,“ segir Drífa í færslu á Facebook í dag þar sem hún svarar Birgi.

Pósturinn, sem bæði Drífa og Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður FFÍ kvitta undir, hefst einmitt á sömu orðum en þar segir að ASÍ hafi borist „nokkur óundirrituð bréf frá fyrrum flugliðum WOW-air og núverandi flugliðum Play“ þar sem óskað væri eftir aðstoð ASÍ vegna starfsumhverfis og kjara.

Megininntak póstsins er síðan hvatning til flugliðanna að vera óhræddir við að skipta um stéttarfélag og ganga í FFÍ svo hægt sé að mæta þessu ákalli. Þar er tekið fram að félagatöl stéttarfélaga séu trúnaðarmál og verði ekki gerð opinber.

„Að öðru leyti förum við með öll samtöl og bréfaskipti sem trúnaðarmál, hvort sem fólk er félagar eða ekki nema annars sé óskað. Það er alltaf velkomið að hafa samband við okkur persónulega, í síma eða tölvupósti,“ segir síðan í lok tölvupóstsins.

Hvergi virðist hins vegar að finna nokkra beiðni um sögur frá starfsfólkinu af illri meðferð Play.

Hér má lesa póstinn í heild sinni:

Kæri flugliði,

Okkur hafa borist nokkur óundirrituð bréf frá fyrrum flugliðum WOW-air og núverandi flugliðum Play þar sem óskað er liðsinnis okkar hjá ASÍ vegna starfsumhverfis og kjara. Eins og hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum þá beittum við okkur mjög gegn því sem við teljum hafa verið ólöglegir samningar um kaup og kjör. Ástæða þess að við beittum okkur af hörku og munum halda því áfram er að rýrnun kjara á einu sviði getur hæglega smitast á önnur svið og um allan vinnumarkaðinn ef við stöndum ekki í lappirnar. Þessari gagnrýni hefur aldrei verið beint að flugliðum eða öðru starfsfólki Play. Við gerum okkur grein fyrir að þið eruð í erfiðri stöðu sem einstaklingar sem þurfa að treysta á vinnu og miðað við upplýsingar sem við búum yfir er fólk hrætt við að missa vinnuna eða verða fyrir enn frekari kjaraskerðingum.

Okkar sýn er skýr; við krefjumst þess að gerðir séu kjarasamningar á félagslegum grunni, að þau sem eiga að vinna eftir samningunum komi að þeim og stéttarfélög séu óháð atvinnurekendum. Þessi barátta er í algleymi en hún ber betri árangur ef við náum auknu samtali við starfsfólk Play og það njóti milliliðalauss stuðnings frá alvöru stéttarfélagi með alvöru bakhjarl.

Við viljum því hvetja þig til að ganga í Flugfreyjufélag Íslands ef þú ert ekki nú þegar félagi þannig að við getum mætt ákalli um stuðning við kjarabætur til handa þér og öðru starfsfólki Play. Félagatöl stéttarfélaga eru trúnaðarmál og verða ekki gerð opinber, hins vegar býr það til félagslegan vettvang til framfara að tilheyra stéttarfélagi sem er óháð og getur beitt sér.

Flestir flugliðar hjá Play hafa áður verið í Flugfreyjufélagi Íslands, byggt þar upp réttindi og notið góðs af þeim bakhjarl sem er að finna bæði hjá Flugfreyjufélaginu og ASÍ. Með inngöngu í Flugfreyjufélagið getur fólk endurvakið rétt sinn.

Að öðru leyti förum við með öll samtöl og bréfaskipti sem trúnaðarmál, hvort sem fólk er félagar eða ekki nema annars sé óskað. Það er alltaf velkomið að hafa samband við okkur persónulega, í síma eða tölvupósti.

Með stuðningskveðju,

Drífa Snædal

forseti ASÍ

Guðlaug Líney Jóhannsdóttir

formaður FFÍ


Tengdar fréttir

Segir starfs­fólki Play engir afar­kostir settir

Forstjóri flugfélagsins Play segir að engum starfsmönnum félagsins hafi verið settir afarkostir í tengslum við áframhaldandi starf í haust og vetur. Tillaga um að bjóða fastráðnum starfsmönnum að lækka starfshlutfall til að fleiri gætu haldið vinnu hefði mælst vel fyrir, en það væri engin skylda. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×