Hallmundur bætist í eigendahópinn Atli Ísleifsson skrifar 13. október 2021 07:49 Hallmundur Albertsson. Aðsend/Silla Páls Hallmundur Albertsson hefur bæst í eigendahóp lögmannsstofunnar Deloitte Legal. Unnið hefur verið að stofnun stofunnar síðustu misserin og er hún með aðild að alþjóðlegu neti Deloitte Legal.
Í tilkynningu segir að Hallmundur sé með sérþekkingu á samkeppnisrétti og lögfræði sem tengist fjarskiptum og upplýsingatækni. „Hallmundur hefur verið sjálfstætt starfandi lögmaður sl. 7 ár en var þar áður yfirlögfræðingur Símans. Á rúmlega 20 ára ferli sem lögmaður hefur Hallmundur byggt upp sérþekkingu sem er eftirsótt af fyrirtækjum og stofnunum. Þar ber helst að nefna samkeppnisrétt og ríkisstyrki, lögfræði sem tengist fjarskiptum, upplýsingatækni og nýsköpun, félagarétt og stjórnarhætti fyrirtækja auk þess að gæta hagsmuna viðskiptavina í ágreiningsmálum fyrir dómstólum og stjórnvöldum,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að hann hafi sótt menntun víða, lokið framhaldsnámi í samkeppnisrétti frá King‘s College í London, hafi stundað nám við Cambridge Háskóla á Englandi í upplýsingatæknirétti auk þess að hafa sótt sérhæfð námskeið við gerð verksamninga (FIDIC) og innleiðingu samkeppnisréttaráætlana. Hallmundur er ennfremur viðurkenndur stjórnarmaður frá Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti fyrirtækja við Háskóla Íslands og hefur lokið námi í sáttamiðlun. Haraldur I. Birgisson og Guðbjörg Þorsteinsdóttir.Aðsend Tvö þúsund lögmenn í áttatíu löndum Síðustu misserin hefur verið unnið að stofnun stofunnar og hefur hún aðild að alþjóðlegu neti Deloitte Legal. Í tilkynningu segir að um tvö þúsund lögmenn og lögfræðingar í yfir áttatíu löndum starfi hjá Deloitte Legal á heimsvísu. „Staðbundin sérfræðiþekking, alþjóðleg reynsla og þrautreynd aðferðafræði gerir Deloitte Legal kleift að veita víðtæka þjónustu þvert á landamæri. Þá hefur Deloitte Legal á alþjóðavísu fjárfest umtalsvert í tæknitengdum lausnum sem munu koma til með að breyta því hvernig lögmannsstofur vinna í framtíðinni,“ segir í tilkynningunni. Haraldur I. Birgisson er einn eigenda Deloitte Legal á Íslandi og framkvæmdastjóri. Guðbjörg Þorsteinsdóttir er stjórnarformaður stofunnar og einn eigenda.
Vistaskipti Mest lesið Ísland að detta úr tísku Viðskipti innlent „Árstíðarsveifla“ ástæða 57 uppsagna Viðskipti innlent „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Lætur mál gegn OpenAI niður falla Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Árstíðarsveifla“ ástæða 57 uppsagna Ísland að detta úr tísku Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Sjá meira