Rafíþróttir

Riðla­keppni heims­meistara­mótsins hefst í dag | Titil­vörnin byrjar á stór­leik

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ríkjandi heimsmeistarar í DWG KIA hefja titilvörn sína í dag.
Ríkjandi heimsmeistarar í DWG KIA hefja titilvörn sína í dag. Colin Young-Wolff/Riot Games Inc. via Getty Images

Keppni í undanriðlum á heimsmeistaramótinu í League of Legends sem fram fer í Laugardalshöll lauk á laugardaginn og nú er komið að alvöru lífsins þegar að stærstu og sterkustu lið heims mæta á sviðið, en riðlakeppnin hefst seinna í dag.

LNG og DetonatioN FocusMe tryggðu sér sigur í undanriðlunum og þar af leiðandi fengu þau sæti í riðlakeppninni. Sex lið fóru í umspil um tvö laus sæti í riðlakeppninni, og eftir virkilega jafnar og spennandi viðureignir í undanúrslitunum tryggðu Cloud9 og Hanwha Life sér lausu sætin tvö með yfirburðar sigrum í úrslitunum.

Alls verða spilaðir átta leikir í dag, en öll 16 liðin sem unnu sér inn sæti í riðlakeppninni leika einn leik.

Opnunarleikur riðlakeppninnar er ekki af verri endanum. Ríkjandi heimsmeistarar í DWG KIA hefja leik gegn kínverska stórliðinu FunPlus Phoenix, FPX, í dauðariðlinum.

Annar leikur dagsins er viðureign Royal Never Give Up og PSG Talon, en þessi lið mættust í undanúrslitum MSI sem haldið var hér á Íslandi í vor. Þar fór Royal Never Give Up með 3-1 sigur og endaði svo á að vinna mótið. Liðsmenn PSG Talon vilja líklega hefna fyrir það tap.

Hanwha Life mætir svo evrópska liðinu Fnatic í leik númer þrjú, áður en Gen.G og LNG eigast við í fjórðu viðureign dagsins.

Gamla stórveldið T1 mætir DetonatioN FocusMe í fimmta leik dagsins, en það bíða eflaust margir í eftirvæntingu eftir þeirri viðureign. T1, sem var áður þekkt sem SKT eða SK Telecom, missti af sæti á heimsmeistaramótinu í fyrra, en liðið hefur unnið heimsmeistaratitilinn þrisvar, oftar en nokkuð annað lið í sögunni.

Á eftir þeirri viðureign er komið að kínversku meisturunum í EDward gaming, en þeir mæta bandaríska liðinu 100 Thieves.

Seinustu tvær viðureignir dagsins bjóða svo upp á baráttu á milli Evrópu og Bandaríkjanna. Næst síðasti leikur dagsins er viðuregin Team Liquid og MAD Lions, áður en Rogue og Cloud9 loka deginum.

Heimsmeistaramótið í League of Legends er sýnt í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport, en fyrsti leikur dagsins hefst klukkan 11:00.

Leikir dagsins

11:00: DWG KIA - FPX (A-riðill)

12:00: Royal Never Give Up - PSG Talon (C-riðill)

13:00: Hanwha Life Esports - Fnatic (Criðill)

14:00: LNG Esports - Gen.G (D-riðill)

15:00: DetonatioN FocusMe - T1 (B-riðill)

16:00: EDward Gaming - 100 Thieves (B-riðill)

17:00: Team Liquid - MAD Lions (D-riðill)

18:00: Rogue - Clod9 (A-riðill)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×