Viðskipti innlent

Seðla­bankinn hækkar enn stýri­vexti

Atli Ísleifsson skrifar
Klukkan 9:30 hefst vefútsending fulltrúar peningastefnunefndar munu gera grein fyrir ákvörðun nefndarinnar.
Klukkan 9:30 hefst vefútsending fulltrúar peningastefnunefndar munu gera grein fyrir ákvörðun nefndarinnar. Vísir/Vilhelm

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 1,5 prósent.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum, en bæði Landsbankinn og Íslandsbanki höfðu á síðustu dögum einmitt spáð hækkun stýrivaxta um 0,25 prósent, í 1,5 prósent.

Í yfirlýsingu nefndarinnar segir að samkvæmt bráðabirgðatölum þjóðhagsreikninga hafi hagvöxtur á fyrri hluta þessa árs verið heldur minni en gert var ráð fyrir í ágústspá Peningamála

„Vöxtur innlendrar eftirspurnar var hins vegar í ágætu samræmi við spá bankans. Vísbendingar eru um áframhaldandi kröftugan innlendan efnahagsbata á þriðja fjórðungi ársins og hagvaxtarhorfur fyrir árið í heild hafa lítið breyst.

Verðbólga jókst í september og mældist 4,4%. Framlag húsnæðisliðarins hélt áfram að aukast og skýrir stóran hluta af ársverðbólgu í september. Undirliggjandi verðbólga hélt hins vegar áfram að hjaðna þótt hún sé enn nokkur. Áhrif tímabundinna framboðstruflana gætu aftur á móti varað lengur en áður var talið en þær hafa hækkað kostnað við að framleiða og dreifa vörum um allan heim.

Þótt undirliggjandi verðbólga fari minnkandi er það áhyggjuefni að verðbólguvæntingar virðast hafa tekið að hækka á ný. Of snemmt er þó að segja til um hvort kjölfesta þeirra við verðbólgumarkmið sé að veikjast.

Peningastefnunefnd mun beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða til að tryggja að verðbólga hjaðni aftur í markmið innan ásættanlegs tíma,“ segir í yfirlýsingunni.

Vextir verða því sem hér segir:

  1. Daglán 3,25%
  2. Lán gegn veði til 7 daga 2,25%
  3. Innlán bundin í 7 daga 1,50%
  4. Viðskiptareikningar 1,25%“

Klukkan 9:30 hefst vefútsending þar sem Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns, munu gera grein fyrir ákvörðun nefndarinnar. Hægt verður að fylgjast með fundinum á Vísi.

Síðasta vaxtaákvörðun Seðlabankans var 25. ágúst síðastliðinn, en þá var ákveðið að hækka vexti um 0,25 prósent, þannig að meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, yrðu 1,25 prósent.

Næsta ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans verður svo 17. nóvember næstkomandi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×