Fékk íslenska einangrun í fimmtugsafmælisgjöf Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 19. september 2021 20:20 Kroll segir matinn hafa verið langverstann við dvölina á farsóttahótelinu. vísir/vilhelm Bandarískur embættismaður frá Flórída eyddi fimmtugsafmælisferð sinni til Íslands á farsóttarhóteli. Hann segir dvölina hafa verið erfiða, einkum vegna matarins og að sér hafi liðið eins og heimilisketti á hótelinu.
J.R. Kroll er nýkjörinn skattheimtumaður í Seminole-sýslu í Flórída, Bandaríkjunum. Hann tók við stöðunni af Joel Greenberg, sem varð að segja af sér eftir hneykslismál. Kroll varð fimmtugur í júní á þessu ári og fékk þá sex daga ferð til Íslands í gjöf frá konunni sinni. „Það hefur alltaf verið á golulista (e. bucket list) okkar að sjá Ísland því það er svo fallegt land. Ég sá reyndar ansi lítið af því…“ segir Kroll í samtali við fréttastofu. Hrifinn af skilvirkni Íslendinga Þau hjón fóru í tvær sýnatökur stuttu fyrir brottförina til Íslands og fengu neikvæðar niðurstöður úr báðum. Þega þau voru nýlent fór Kroll þó að finna fyrir slappleika og ákveður að bóka sýnatöku hjá heilsugæslunni degi síðar. Hann kveðst afar sáttur með fyrirkomulag við sýnatökur hérlendis. „Mjög skilvirkt… Miklu skilvirkara en í Bandaríkjunum!“ segir hann. Hann var þó ekki alveg eins hrifinn af ferlinu sem tók svo við eftir að hann greindist Covid-19. „Þeir sóttu mig og fóru með mig á farsóttahótelið. Upprunalega hótelið mitt var mun betra,“ segir hann og hlær. Þau hjónin hafi til dæmis ætlað að njóta sín í heilsulind þess og taka því rólega milli ferða hingað og þangað um landið á helstu ferðamannastaðina. Leið eins og inniketti „Þetta var samt ekkert hræðileg aðstaða. Ég held bara að manni geti varla liðið vel þar sem maður er lokaður inni í svona langan tíma,“ segir Kroll. Eiginkona hans reyndist ekki smituð af veirunni og flaug því beint aftur heim. Kroll eyddi því fimmtugsafmælisferðinni einn með farsímanum, án tölvu, bóka eða nokkurs annars afþreyingarefnis. Reyndar hafði hann aðgang að tveimur erlendum sjónvarpsstöðvum á hótelinu en þær sýndu, að hans sögn, sömu þættina í endursýningu ansi reglulega. Hann var þá aðeins búinn að pakka með sér fötum fyrir sex daga ferð en endaði á að dvelja hér í 13 daga. Hann kveðst því nokkuð þakklátur fyrir að lyktarskynið hafi horfið. Ekkert eftirlit í Flórída Hann segir allt í kring um faraldurinn hér ansi ósvipað því sem hann þekkir frá Flórída. Til dæmis sé ekkert eftirlit með því hvort fólk haldi sig í einangrun þegar það greinist smitað eða skýrar reglur um hve lengi fólk þarf vera innilokað. Þar séu heldur engin farsóttahótel eins og á Íslandi. „Maður þarf í rauninni bara að fara í sóttkví af eigin hvötum ef maður fær veiruna. Stjórnvöld grípa ekki inn í á neinn hátt með aðgerðum. Þess vegna eru smittölur líklega svona háar hér," segir Kroll. Hann er staðráðinn í að heimsækja Ísland aftur síðar en ætlar ekki að ferðast meira í þessum faraldri. En stóð eitthvað upp úr eftir þessa hálfmisheppnuðu ferð hans? „Tjah, það var allavega ekki maturinn á hótelinu…“ segir hann og hlær. „Maturinn annars staðar á landinu var frábær en hótelmaturinn var skelfilegur. Hann var aldrei heitur og ég hefði alveg verið til í að hafa örbylgjuofn hérna hjá mér á herberginu.“ Hann ítrekar þó að allt starfsfólk hótelsins og hjúkrunarfræðingar hafi verið afar indæl og staðið sig með einstakri prýði. Kannast við ósætti við matinn Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónarmaður farsóttahúsanna, segist vita vel að margir séu ósáttir með matinn. „Auðvitað höfum við heyrt athugasemdir, sérstaklega með matinn. Það er erfitt þegar margir eru í húsi og á tímabili þegar við vorum með allt upp í 5-600 manns. Það tekur tíma að dreifa matnum og hann getur kólnað á meðan. En við reynum auðvitað að gera okkar besta. En það er erfitt að láta öllum líka vel en við reynum,“ segir hann í samtali við fréttastofu. Gylfi Þór Þorsteinsson er umsjónarmaður farsóttarhótelsins á Rauðarárstíg.Vísir/Einar Fáið þið líka hrós? „Jájá. Við fáum mjög mikið af góðum þakkarbréfum frá fólki sem hefur verið hjá okkur. Það er nú þannig að til okkar kemur fólk sem getur ekki verið annarstaðar. Til dæmis erlendir ferðamenn sem hafa þurft að vera hér á landi tveimur vikum lengur en ella út af einangrun. Í langflestum tilfellum eru þau bara fegin að fá þessa þjónustu og þurfa ekki að greiða fyrir,“ segir Gylfi. „Auðvitað eru alltaf einhverjir ósáttir, og við reynum þá að leysa það eins og okkur er unnt. En það er auðvitað erfitt að þurfa að vera í einangrun í allan þennan tíma. Það er ekkert launungarmál.“
Bandaríkin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Íslandsvinir Tengdar fréttir Vinur Gaetz ætlar að játa og starfa með saksóknurum Joel Greenberg, fyrrverandi embættismaður í Flórída og vinur þingmannsins umdeilda Matt Gaetz, hefur játað að hafa greitt sautján ára stúlku peninga fyrir að stunda kynlíf með öðrum mönnum. Hann ætlar sömuleiðis að vinna með saksóknurum Dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna. 15. maí 2021 10:21 Vinur Gaetz vildi náðun og viðurkenndi kynlíf með sautján ára stúlku Joel Greenberg, kjörinn fulltrúi í Flórída og vinur þingmannsins umdeilda Matt Gaetz, skrifaði í bréfi til Rogers Stone, fyrrverandi ráðgjafa Donalds Trump, fyrrverandi forseta, að hann og Gaetz hefðu greitt fyrir kynlíf með mörgum konum, þeirra á meðal sautján ára stúlku. 30. apríl 2021 12:09 Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Fleiri fréttir Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Sjá meira
Vinur Gaetz ætlar að játa og starfa með saksóknurum Joel Greenberg, fyrrverandi embættismaður í Flórída og vinur þingmannsins umdeilda Matt Gaetz, hefur játað að hafa greitt sautján ára stúlku peninga fyrir að stunda kynlíf með öðrum mönnum. Hann ætlar sömuleiðis að vinna með saksóknurum Dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna. 15. maí 2021 10:21
Vinur Gaetz vildi náðun og viðurkenndi kynlíf með sautján ára stúlku Joel Greenberg, kjörinn fulltrúi í Flórída og vinur þingmannsins umdeilda Matt Gaetz, skrifaði í bréfi til Rogers Stone, fyrrverandi ráðgjafa Donalds Trump, fyrrverandi forseta, að hann og Gaetz hefðu greitt fyrir kynlíf með mörgum konum, þeirra á meðal sautján ára stúlku. 30. apríl 2021 12:09